Lífið

Vinnuhjú Beckham-hjónanna ekki ákærð

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
David Beckham.
David Beckham. MYND/Nordic Photo/Getty Images

Vinnuhjú Beckham-hjónanna verða ekki sótt til saka fyrir meintan þjófnað á húsmunum þeirra og tilraun til að selja þá á uppboðsvefnum eBay.

Vinnuhjúin, sem unnið hafa fyrir David og Victoriu Beckham í meira en tíu ár og annast glæsivillu þeirra nærri Sawbridgeworth á Englandi, voru handtekin í október vegna gruns um þjófnað en sleppt eftir yfirheyrslur. Lögregla segir að ákveðið hafi verið í samráði við Beckham-hjónin að fella málið niður.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.