Niðurskurður leggst þungt á Háskólann á Akureyri 18. desember 2008 10:51 Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri.
Útgjöld til Háskólans á Akureyri verða skorin niður um 127,5 milljónir króna eða 8,8% samkvæmt nýju fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnar verði það samþykkt. Háskólaráð skólans samþykkti á fundi sínum í vikunni að fela framkvæmdastjórn háskólans að gera tillögur að rekstraráætlun fyrir árið 2009 þar sem stefnt verði að því að mæta fyrirhuguðum niðurskurði án þess að segja upp starfsfólki. Fyrirsjáanlegt er að þessi niðurskurður mun leggjast þungt á starfsemi háskólans á næsta ári. Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, gagnrýndi boðaðan niðurskurð í samtali við Vísi í gær og sagði HÍ vera í afar þröngri stöðu. Ekki sé hægt að skera niður á sama tíma og nemendum fjölgar umtalsvert. Umsóknarfrestur í Háskólann á Akureyri rann út á mánudaginn en þá höfðu 134 sótt um grunnnám við skólann og 30 í framhaldsnám. Fjöldi umsókna er tæplega 12% af nemendafjölda skólans. ,,Þrátt fyrir þennan niðurskurð verða þeir umsækjendur sem uppfylla inntökuskilyrði innritaðir í háskólann enda ganga þeir inn í námshópa sem þegar hefur verið gert ráð fyrir. Kappkostað verður að kennsla uppfylli ströngustu gæðakröfur hér eftir sem hingað til," segir í tilkynningu.
Tengdar fréttir Háskóli Íslands í mjög þröngri stöðu Háskóli Íslands getur ekki tekið á móti 1600 nýjum nemum og þolað niðurskurð um einn milljarð króna á sama tíma, segir Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands. Samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár er gert ráð fyrir að framlög til Háskóla Íslands verði skorin niður um 900 milljónir króna. Kristín segir að skólinn sé í mjög þröngri stöðu. 17. desember 2008 15:40 Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Sjá meira
Háskóli Íslands í mjög þröngri stöðu Háskóli Íslands getur ekki tekið á móti 1600 nýjum nemum og þolað niðurskurð um einn milljarð króna á sama tíma, segir Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands. Samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár er gert ráð fyrir að framlög til Háskóla Íslands verði skorin niður um 900 milljónir króna. Kristín segir að skólinn sé í mjög þröngri stöðu. 17. desember 2008 15:40