Lífið

Sjónvarpsmannaslagur á Ásvöllum

Sjónvarpsmennirnir Logi „Í beinni" Bergmann og Gísli „Út og Suður" Einarsson etja kappi í körfubolta á Ásvöllum á laugardaginn, þar sem Stjörnuleikir KKÍ 2008 fara fram. Sér til halds og traust hafa þeir svo kunnáttumenn sér við hlið. Logi nýtur fulltyngis Jóns Arnórs Stefánssonar, en Logi Gunnarsson aðstoðar Gísla.

„Ég treysti svolítið á Jón Arnór. Geim planið sem ég legg upp með er svoldið að hann klóri mig út úr þessu," segir Logi, sem þó kannast ekki við að vera lélegur í körfubolta. „Nei nei, ég varð meðal annars Íslandsmeisti með Ármanni," segir Logi, og bætir við að reyndar hafi hann verið tólf ára þegar það gerðist. „Síðan hef ég ekki unnið margar medalíur," segir Logi.

Logi viðurkennir raunar að hafa ekki snert körfubolta í fimm ár og að hann sé því kannski ekki í NBA formi. „Kannski meira í brauðformi," segir Logi, og varpar allri ábyrgð á því hvernig leikurinn fer á félaga sinn Jón. „Hann var á mála hjá Dallas Maverics," segir Logi. „Hvernig ætti maðurinn að geta klúðrað einum leik?."














Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.