Icelandair hefur flug til Toronto 1. maí 2008 18:54
Icelandair mun á morgun, föstudaginn 2. maí, hefja beint áætlunarflug milli Íslands og Toronto í Kanada. Samningur um gagnkvæm flugréttindi milli landanna sem íslensk og kanadísk stjórnvöld undirrituðu í Ottawa á síðasta ári er forsenda flugsins og mun Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra taka þátt í fyrsta fluginu á morgun og vera heiðurgestur hátíðardagskrár í Toronto um helgina á vegum Icelandair og Torontoborgar. Þetta segir í fréttatilkynningu frá Icelandair. „Icelandair vann að því ásamt utanríkisráðuneytinu og samgönguráðuneytinu að koma á samningi um flugréttindi milli Íslands og Kanada og þessi tímamót eru fagnaðarefni. Við biðum lengi eftir því að fá aðgang að þessum markaði og förum inn á hann með krafti og því hugarfari að efla ferðalög milli landanna. Stjórnvöld hafa unnið mjög gott starf við að opna fyrir þessi samskipti og það færir okkur spennandi tækifæri til að þróa leiðakerfi félagsins inn á nýjar brautir," segir Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group. Toronto er langstærsta borgin í Kanada og helsta samgöngumiðstöð landsins. „Borgin er lifandi fjölmenningarborg sem gaman er að heimsækja auk þess sem hún býður upp á frábær tækifæri til áframhaldandi tengiflugs innan Kanada og Bandaríkjanna. Hún gefur okkur einnig mikla möguleika til að sækja ferðamenn til Íslands því borgin er miðpunktur í milljónasamfélagi. Þau réttindi sem við fengum með samningi Íslands og Kanada gefa okkur líka spennandi tækifæri í flugi, t.d. milli Norðurlandanna og Kanada með viðkomu á Íslandi," segir Gunnar Már Sigurfinnsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Icelandair. Flogið verður milli Íslands og Toronto þrisvar í viku í maí og fimm sinnum í viku í sumar, en auk þess flýgur Icelandair til Halifax í Kanada.
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Sjá meira