Innlent

Icelandair hefur flug til Toronto

Icelandair mun á morgun, föstudaginn 2. maí, hefja beint áætlunarflug milli Íslands og Toronto í Kanada. Samningur um gagnkvæm flugréttindi milli landanna sem íslensk og kanadísk stjórnvöld undirrituðu í Ottawa á síðasta ári er forsenda flugsins og mun Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra taka þátt í fyrsta fluginu á morgun og vera heiðurgestur hátíðardagskrár í Toronto um helgina á vegum Icelandair og Torontoborgar. Þetta segir í fréttatilkynningu frá Icelandair.

„Icelandair vann að því ásamt utanríkisráðuneytinu og samgönguráðuneytinu að koma á samningi um flugréttindi milli Íslands og Kanada og þessi tímamót eru fagnaðarefni. Við biðum lengi eftir því að fá aðgang að þessum markaði og förum inn á hann með krafti og því hugarfari að efla ferðalög milli landanna. Stjórnvöld hafa unnið mjög gott starf við að opna fyrir þessi samskipti og það færir okkur spennandi tækifæri til að þróa leiðakerfi félagsins inn á nýjar brautir," segir Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group.

Toronto er langstærsta borgin í Kanada og helsta samgöngumiðstöð landsins. „Borgin er lifandi fjölmenningarborg sem gaman er að heimsækja auk þess sem hún býður upp á frábær tækifæri til áframhaldandi tengiflugs innan Kanada og Bandaríkjanna. Hún gefur okkur einnig mikla möguleika til að sækja ferðamenn til Íslands því borgin er miðpunktur í milljónasamfélagi. Þau réttindi sem við fengum með samningi Íslands og Kanada gefa okkur líka spennandi tækifæri í flugi, t.d. milli Norðurlandanna og Kanada með viðkomu á Íslandi," segir Gunnar Már Sigurfinnsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Icelandair.

Flogið verður milli Íslands og Toronto þrisvar í viku í maí og fimm sinnum í viku í sumar, en auk þess flýgur Icelandair til Halifax í Kanada.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×