Vilja sterkari viðbrögð frá ESB við árásum Rússa 11. ágúst 2008 13:39 Bernarnd Kouchner, utanríkisráðherra Frakklands, er hér á ferð í Gori í Georgíu í dag en hann var sendur á ásamt finnskum starfsbróður sínum til þess að miðla málum í deilunni. MYND/AP
Míkheil Saakashvílí, forseti Georgíu, sakaði í dag Rússa um að reyna að steypa ríkisstjórn hans af stóli með árásum á skotmörk í Georgíu. Greint var frá því fyrr í dag að Rússar hefðu hafnað tillögum Georgíumanna um vopnahlé í deilunni um Suður-Ossetíu sem hefur stigmagnast frá því fyrir helgi. Rússar segjast hins vegar engin áform hafa um að ráðast inn í Georgíu, þeir séu aðeins að verja rússneska borgara, en meirihluti Suður-Osseta er með rússneskt ríkisfang. Sendiherra Georgíu gagnvart Evrópusambandinu, Salome Samadashvílí, kallaði eftir sterkari viðbrögðum frá sambandinu við árásum Rússa en eins og fram hefur komið vill Georgíustjórn styrkja sambönd sín við ESB og NATO. Evrópusambandið hefur hingað til ekki verið með stóryrtar yfirlýsingar í garð Rússa heldur aðeins hvatt Rússa til að hætta hernaðaraðgerðum á landsvæði Georgíu en hins vegar hefur engu verið hótað enda sambandið háð Rússum í orkumálum. Þá sagði sendiherra Georgíu að Georgíumenn gyldu nú fyrir það að aðildarþjóðir NATO hefðu ekki getað komið sér saman um hvenær þjóðin yrði hluti af varnarbandalaginu. „Rússland hefur sett sér það markmið að vinna gegn stækkun NATO," sagði sendiherrann og vísaði þar til harðrar andstöðu Rússa við því að nágrannaríkin Úkraína og Georgía gangi í bandalagið.
Mest lesið Krafa um fjöldabrottvísanir fólks nemur land á Íslandi Innlent Fjöldi svæða á landinu sambandslaus með öllu Innlent Allt að helmingur barna heima vegna veikinda Innlent Inflúensan á uppleið og seinni bylgjan handan við hornið Innlent Finnst brotið á réttindum barnsins að orlofið sé skert Innlent Laufey Rún hætt störfum hjá Miðflokknum Innlent Sanna býður sig fram undir merkjum Vors til vinstri Innlent Strætó ekið á hjólreiðamann í Laugardal Innlent Gjaldtaka af bílum sé hærri en fjárframlög til vegagerðar Innlent Páll Winkel meðal umsækjenda um embætti ráðuneytisstjóra Innlent Fleiri fréttir Selenskí í Kúpíansk, sem Pútín sagðist hafa hernumið Segir Trump að skipta sér ekki af evrópsku lýðræði Stefna á að taka fleiri skip frá Venesúela Evrópa þurfi að vera búin undir aðra stórstyrjöld Meintur morðingi Kirk mætti fyrir dómara í gær Takmarkar getu ríkjanna til að setja gervigreindinni skorður Bandaríkjamenn vilji koma á fríverslunarsvæði í Donbas Sagður tilbúinn að yfirgefa Venesúela með friðhelgi Hóta að koma fram við Belga eins og Ungverja „Arkitektar gervigreindar“ manneskja ársins hjá Time Fallhlífin flæktist í stélið 900 sviptir ökuleyfinu fyrir að hjóla undir áhrifum áfengis Geta fengið sex milljónir í bætur frá danska ríkinu Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Óvinafögnuður Trumps og Pútíns Missti af afhendingunni en er komin heil á húfi til Osló Þingið ítrekar stuðning Bandaríkjanna við Evrópu Bandaríkjamenn leggja hald á olíuflutningaskip undan ströndum Venesúela Heimila nú birtingu gagna úr rannsókn á Epstein Telur það landráð að skrifa um heilsu sína Sætir líflátshótunum og nær ekki að veita friðarverðlaununum viðtöku Vilja skoða samfélagsmiðla íslenskra ferðamanna Fyrirskipa notkun Times New Roman í stað Calibri Selenskí segist reiðubúinn til að boða til kosninga Samfélagsmiðlabannið hefur tekið gildi í Ástralíu Forsetafrúin kallaði mótmælendur heimskar tíkur Blaðamannafundi aflýst og óvíst hvort Nóbelsverðlaunahafinn mæti Heimilar birtingu gagna úr rannsókn á Maxwell Hylmdu yfir með „Steikarhnífnum“ í Írska lýðveldishernum Sökuð um að drepa barnið sitt með basísku mataræði Hraunar yfir „hnignandi“ heimsálfu Sjá meira