Leitarstríðin - Cuil til höfuðs Google Atli Steinn Guðmundsson skrifar 28. júlí 2008 10:36 MYND/AP
Leitarvélin Cuil, sem sett er til höfuðs leitarflaggskipinu Google í samkeppnislegu tilliti, hefur göngu sína á Netinu í dag. Cuil er runnin undan rifjum hjónanna Tom Costello og Önnu Patterson en hún kom að hönnun Google-leitarvélarinnar á sínum tíma. Eiginmaður hennar er prófessor í tölvunarfræðum við Stanford-háskólann. Cuil er ætlað að vera „stærri, hraðvirkari og betri" en Google að sögn þeirra hjóna og mun það einkum vera röðunarkerfi nýju vélarinnar sem ríður baggamuninn. Þannig beitir Cuil greiningu á efni netsíðna við leitina frekar en að nýta sér lykilorð í tenglum sem vísa á síðuna eins og Google gerir en sú aðferðafræði ku vera misvísandi í sumum tilfellum. Það sem þau hjónin segja þetta tákna á mannamáli er að þegar leitað er að einhverju þekktu nafni eða hugtaki birti leitarvél þeirra sundurliðaðan lista yfir það sem til greina kemur undir sérflipum. Sé leitað að nafninu Harry birtist síða þar sem hægt er að smella á einn flipa fyrir Harry Potter, annan fyrir Harry prins og svo framvegis. Enn frekari sundurliðanir fylgja svo í kjölfarið, undir Harry Potter fást til að mynda vísanir í samstúdenta Potters í galdraskólanum, aðra leikara í myndunum og því um líkt. Cuil birtir enn fremur myndir með leitarniðurstöðum sínum sem gefa notandanum betri hugmynd um efni viðkomandi vefsíðu. Mesta byltingin felst þó í því að leitarsvið Cuil-leitarvélarinnar spannar að sögn hönnuðanna 120 milljarða netsíðna á móti þeim 40 milljörðum sem þau segja Google búa yfir. Þá fullyrða þau að Cuil sé þrefalt hraðvirkari en Google. Sköpunarverkið birtist netverjum í dag og mun að sögn Costello vera fullþroskuð leitarsíða frá fyrsta degi. CNET greindi frá.
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Tvær þyrlur sendar og hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs slyss Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Sjá meira