Jólamyndir af ýmsum toga 30. nóvember 2008 06:00 Stórmyndin Australia er í leikstjórn Baz Luhrmann, sem síðast sendi frá sér söngvamyndina Moulin Rouge!
Jólamyndirnar í ár eiga varla eftir að valda íslenskum kvikmyndaáhugamönnum vonbrigðum. Fjórar myndir, hver annarri ólíkari, verða frumsýndar á annan í jólum, þar sem Nicole Kidman, Jim Carrey, Woody Allen og John Travolta koma öll við sögu. Hefð hefur verið fyrir því í fjölda ára að frumsýna stórar myndir á annan í jólum og verður engin undantekning frá því í ár. Í þetta sinn verða frumsýndar stórmynd Baz Luhrmann, Australia, nýjasta mynd Jims Carrey, Yes Man, Woody Allen-myndin Vicky Christina Barcelona og svo teiknimyndin Bolt þar sem John Travolta talar fyrir hundinn snjalla.Áströlsk ástarsagayes man Jim Carrey er á kunnuglegum slóðum í gamanmyndinni Yes Man þar sem hann segir já við hreinlega öllu í lífinu.Russell Crowe og Nicole Kidman leika aðalhlutverkin í Australia sem er hugarfóstur leikstjórans Baz Luhrmann, sem síðast sendi frá sér söngvamyndina vinsælu Moulin Rouge! fyrir sjö árum. Það tók Luhrmann fjögur ár að gera Australia, sem fjallar um enska yfirstéttarkonu sem verður ástfangin af kúreka. Þetta er epísk stórmynd þar sem bakgrunnurinn er árásir Japana á borgina Darwin í seinni heimsstyrjöldinni en hún var sú eina í Ástralíu sem dróst af einhverri alvöru inn í stríðsátökin. Jákvæður CarreyCruz Pénelope Cruz leikur í nýjustu mynd Woodys Allen ásamt Scarlett Johansson og Javier Bardem.Nærvera Jims Carrey er oftar en ekki ávísun á góða skemmtun. Söguþráður nýjustu myndar hans, Yes Man, lofar góðu því hún fjallar um náunga sem ákveður að fara á sjálfshjálparnámskeið þar sem honum er kennt að segja já við öllu því sem hann er beðinn um. Líf hans breytist skyndilega til hins betra en hann uppgötvar þó fljótt að vilji hans til að taka opnum örmum hverju einasta tækifæri í lífinu gæti verið of mikið af hinu góða. Myndin er byggð á samnefndri bók rithöfundarins Danny Wallace sem eyddi hálfu ári af lífi sínu í að að segja já við einu og öllu til að gera líf sitt skemmtilegra. Lesbísk ástaratlotbolt John Travolta talar fyrir hundinn Bolt í glænýrri teiknimynd.Kvisast hefur út um lesbísk ástaratlot Penélope Cruz og Scarlett Johansson í myndinni Vicky Christina Barcelona og hefur það síður en svo dregið úr áhuganum á þessu nýjasta verki Woodys Allen. Myndin fjallar um tvær vinkonur sem fara í sumarfrí til Spánar og verða ástfangnar af málara nokkrum leiknum af Javier Bardem, sem fékk Óskarinn fyrr á árinu fyrir frábæra frammistöðu í No Country For Old Men. Þær vita aftur á móti ekki að hans fyrrverandi eiginkona á eftir að koma óvænt við sögu og valda miklum usla. Myndin hefur fengið góða dóma og þykir sanna að Allen hefur engu gleymt þrátt fyrir að vera kominn á áttræðisaldurinn. Ofurhundurinn BoltSjálfur John Travolta talar fyrir hundinn Bolt í samnefndri teiknimynd, sem á vafalítið eftir að njóta vinsælda á meðal ungu kynslóðarinnar. Bolt hefur verið alinn upp á tökustað eins vinsælasta sjónvarpsþáttar Bandaríkjanna. Fyrir vikið telur hann að hann búi yfir yfirnáttúrulegum kröftum og þegar hann er óvart sendur í burtu til New York reynir fyrst á raunverulega hæfileika hans. Barnastjarnan Miley Cyrus, sem er þekktust úr sjónvarpsþáttunum Hannah Montana, talar fyrir fyrir Penny, vinkonu Bolt. Eitthvað fyrir allaÞað verður sem sagt eitthvað fyrir alla í bíó yfir jólin og vonandi á fólk eftir að gleyma sér rækilega yfir hressilegri Hollywood-afþreyingunni, enda veitir ekki af því.
Mest lesið Svona verður röð laganna á laugardaginn Lífið Einhleypir þokkasveinar Lífið Segist ástæða þess að Taylor Swift sé ekki lengur „heit“ Lífið „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikið sorg“ Lífið Koníakstofa á þakinu og stórbrotið útsýni Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Vinsælir í Basel en hversu hátt ná þeir? Lífið Bieber segist ekki á meðal þeirra sem Diddy braut á Lífið Framtíðin óljós hjá Sigrúnu Ósk Lífið Þórhildur greinir frá kyninu Lífið Fleiri fréttir Segist ástæða þess að Taylor Swift sé ekki lengur „heit“ Þórhildur greinir frá kyninu Bieber segist ekki á meðal þeirra sem Diddy braut á Koníakstofa á þakinu og stórbrotið útsýni Vinsælir í Basel en hversu hátt ná þeir? Herra Hnetusmjör í aðalhlutverki hjá Laufeyju Framtíðin óljós hjá Sigrúnu Ósk Einhleypir þokkasveinar Svona verður röð laganna á laugardaginn Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Þessi tíu lög komust í úrslit VÆB bræður á forsíðu BBC „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikið sorg“ Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Sjá meira