Frjálslyndir á norðausturlandi styðja nýjan meirihluta 22. janúar 2008 21:25 Nýr meirihluti í Reykjavík.
Hin ýmsu félög tengd stjórnmálaflokkunum hafa sent frá sér yfirlýsingar þar sem nýr meirihluti í borginni nýtur annaðhvort stuðnings eða hann er fordæmdur. Kjördæmisráð Frjállyndaflokksins í norðausturkjördæmi lýsir yfir stuðningi í yfirlýsing. „Kjördæmisráð Frjálslynda Flokksins í norðausturkjördæmi lýsir hér með yfir stuðningi við nýjan borgarstjórnarmeirihluta og borgarstjóra í málefnum Reykjavíkurflugvallar. Um gífurlegt hagsmuna- og öryggismál er að ræða fyrir alla landsmenn, og ljóst að þegar fjallað er um framtíð flugvallarins verður að taka fullt tillit til þessara hagsmuna. Bent skal á að Reykjavíkurflugvöllur er ein forsenda þess að Reykjavík rísi undir nafni sem höfuðborg allra landsmanna, og þess utan er hann mikilvægasti sjúkraflugvöllur landsins vegna nálægðar hans við stærstu og fullkomnustu sjúkrahús okkar. Samkvæmt yfirlýstri stefnu hins nýja meirihluta er ljóst að verndun þessara hagsmuna er einmitt ætlun hans. Ennfremur er ánægjulegt að stefnt sé nú að varðveislu hinnar gömlu ásýndar miðbæjar Reykjavíkur, en þar er um að ræða menningarverðmæti allra landsmanna. Loks er mikilsverður einnig sá árangur að stefnumál Frjálslynda Flokksins almennt fái nú brautargengi í málefnum borgarinnar." Stjórn Varðar fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík fagnar einnig nýjum meirihluta. „Stjórn Varðar - Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík fagnar nýjum meirihluta Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur í samstarfi við Ólaf F. Magnússon og F-listann. Stjórnin lýsir einnig yfir stuðningi við málefnasamninginn sem þegar hefur verið kynntur. Þá fagnar stjórnin því sérstaklega að nýr meirihluti mun leggja fram tillögu um lækkun fasteignaskatta, sem koma mun öllum borgarbúum til góða, á fundi í borgarstjórn næstkomandi fimmtudag." Ungir Vinstri grænir í Reykjavík hafa einnig sent frá sér yfirlýsingu vegna málsins. „Ung vinstri græn í Reykjavík lýsa yfir vantrausti á nýjasta meirihlutann í borgarstjórn Reykjavíkur.Við teljum það þvert á vilja borgarbúa og raunar vanvirðing við lýðræðið að oddviti lista sem hlaut innan við 10% atkvæða borgarbúa í síðustu borgarstjórnarkosningum, njóti nú aðeins 3% stuðning samkvæmt nýlegri skoðanakönnun og ekki einu sinni stuðnings hjá eigin varamönnum sé orðinn borgarstjóri. Slíkt bendir augjóslega til þess að valdafýsn sé tekin fram yfir hagsmuni Reykvíkinga. Tíð meirihluta- og borgarstjóraskipti undanfarinna mánaða hafa rúið borgarstjórnina í heild sinni öllu trausti og það er miður. Á meðan borgarfulltrúar eru uppteknir af pólitísku plotti og meirihlutaskiptum þá er enginn að stjórna borginni en það er merki um ótrúlegt ábyrgðarleysi. Réttast væri, þótt það sé annmörkum háð, að breyta lögum um sveitastjórnarkosningar og boða til nýrra kosninga svo borgarstjórn fái endurnýjað umboð frá kjósendum og byggi upp það traust sem hún hefur tapað."
Mest lesið Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Sjá meira