Geir: Trúverðugur meirihluti í borginni 22. janúar 2008 10:49 Geir Hilmar Haarde, forsætisráðherra.
Geir H. Haarde forsætisráðherra hélt blaðamannafund eftir ríkistjórnarfundinn í morgun þar sem hann fór yfir stöðuna í Reykjavík eftir að nýr meirihluti varð til í gær. Hann sagði ljóst að breytingarnar hafi engin áhrif á ríkisstjórnarsamstarfið og að hann hafi þegar rætt málið við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, utanríkisráðherra og formann Samfylkingarinnar. Geir sagði ljóst að hann hafi ekki verið ánægður með það þegar meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sprakk í fyrra og þá þegar hafi hann talið að samstarf fjögurra flokka myndi ekki ganga í Reykjavík. Geir sagðist ánægður með að sjálfstæðismenn séu aftur komnir í meirihluta í borginni og hann var bjartsýnn á að nýr meirihluti geti komið ýmsu til leiðar, eins og málefnaskráin sem kynnt var í gær benti til. Hann sagðist einnig ánægður með að sættir skuli hafa náðst á milli Ólafs F. Magnússonar og Sjálfstæðisflokksins en Ólafur var afar óhress með vinnubrögð Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar á sínum tíma þegar hann myndaði meirihluta með Birni Inga Hrafnssyni. Þegar Geir var spurður út í þá staðreynd að Margrét Sverrisdóttir, varamaður Ólafs F. styddi ekki þennan nýja meirihluta sagði hann þá stöðu óneitanlega flókna, en hann sagðist treysta því að meirihlutinn getir setið út kjörtímabilið. „Þetta er trúverðugur meirihluti," sagði Geir. Hann sagðist fyrst hafa gert sér grein fyrir því að alvara væri komin í viðræður á milli Ólafs og sjálfstæðismanna í gær þegar Vilhjálmur Vilhjálmsson hringdi í sig og greindi honum frá stöðu mála. Að lokum ítrekaði Geir að þessi mál muni ekki hagga ríkisstjórninni auk þess sem hann bauð Ólaf F. Magnússon velkominn í Sjálfstæðisflokkinn á ný en hann sagði sig úr flokknum eftir frægan landsfund árið 2001.
Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Fleiri fréttir Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Byrja ekki að sekta á morgun Bein útsending: Alþjóðasamvinna á krossgötum Þörf eftir sértæku húsnæði fyrir yngri en 25 muni „fara verulega vaxandi“ Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Sjá meira