Björguðu 180 tonna bát í Njarðvík 22. janúar 2008 06:44
180 tonna mannlaus stálbátur, Tjaldanes GK, slitnaði frá bryggju í Njarðvík í nótt og rak upp í fjöru. Björgunaraðgerðir báru þann árangur að báturinn náðist á flot og aftur að bryggju laust fyrir klukkan sjö. Verið er að kanna skemmdir. Annar minni bátur slitnaði þar frá bryggju, en náðist áður en hann ræki upp í fjöruna, en á áttunda tímanum komst sjór í hraðfiskibátinn Sunnu Líf KE í Keflavíkurhöfn og marar hann í hálfu kafi. Samhæfingastöð Almannavarna var mönnuð laust fyrir miðnætti og hafa björgunarsveitir víða verið kallaðar út vegna foks og leka. Veðurofsinn hefur verið mestur frá Vestmannaeyjum, suður um Reykjanesið og norðvestur til Bolungarvíkur, þar sem björgunarmenn voru kallaðir út undir morgun vegna foks. Þá brutust björgunarsveitarmenn upp á Fróðárheiði seint í gærkvöldi til að aðstoða fólk, sem sat þar fast í bílum sínum. Nokkur flutningaskip liggja í vari inni á Faxaflóa, þar af eitt sem snéri við eftir að hafa reynt að sigla fyrir Reykjanesið í gærkvöldi. Víða er mikið snjófarg á húsþökum og eru nokkur dæmi þess að snjórinn hafi rifið með sér þakkanta þegar hann hefur runnið niður í hlákunni. Sumstaðar hafa þök líka farið að leka og dæmi eru um að niðurföll hafi stíflast og vatn komist inn í kjallara.
Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Fleiri fréttir Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Sjá meira