Vilja Mugabe burt 19. desember 2008 15:13 Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra.
Utanríkisráðherrar Norðurlandanna, Noregs, Svíþjóðar, Finnlands, Danmerkur og Íslands, lýsa yfir hneykslan á hinu alvarlega ástandi í Simbabve, sem fer versandi dag frá degi. Í yfirlýsingu sem ráðherrarnir sendu frá sér í dag segir að þjáningar íbúa landsins hafi enn aukist þar sem kólerufaraldur gengur nú yfir. Þrátt fyrir að lækning sé til við kóleru hafi fjöldi manna látið lífið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Utanríkisráðuneytinu. Þar segir ennfremur að Norðurlöndin telji nauðsynlegt að óstjórn Roberts Mugabe ljúki og að bundinn verði endir á virðingarleysi fyrir lýðræði og mannréttindum þar sem þessi gildi séu forsenda stuðnings Norðurlandanna við löndin í sunnanverðri Afríku. „Í yfirlýsingu utanríkisráðherrana segir að yfirvöld í Simbabve beri ein ábyrgð á því skelfilega ástandi sem nú ríki í landinu. Ofbeldi og hótunum í garð þeirra sem gagnrýna yfirvöld í Simbabve linni ekki. Hvarf mannréttindabaráttukonunnar Jestinu Mukoko og handtaka félaga í stjórnmálasamtökunum MDC (Hreyfingu fyrir lýðræðislegum breytingum) séu skelfileg dæmi um mannréttindabrot. Norðurlöndin lýsa áhyggjum sínum af örlögum Mukoko og annarra og krefjast þess að mannréttindi séu virt í Simbabve. Þá skora norrænu ráðherrarnir á stjórnarflokkinn Zanu-PF og MDC að reyna til þrautar að ná samkomulagi um myndun stjórnar, en ekkert hefur þokast í þá átt á þeim þremur mánuðum sem liðnir eru frá því að flokkarnir lýstu vilja sínum til þess. Segja ráðherrarnir stjórnvöld í Simbabve hafa dregið úr líkum á samkomulagi, m.a. með einhliða skipan héraðsstjóra og staðfestingu á skipan seðlabankastjóra. Norðurlöndin ítreka mikilvægi aðkomu Þróunarsamtaka í sunnanverðri Afríku (SADC), Afríkubandalagsins og Sameinuðu þjóðanna að lausn ástandsins í Simbabve. Norðurlöndin ítreka vilja sinn til að styðja við efnahagslega og samfélagslega uppbyggingu í Simbabve þegar trúverðug stjórn hefur verið mynduð og sýnt þykir að staðið verði við grundvallarreglur alþjóðasamfélagsins, einkum hvar varðar virðingu fyrir mannréttindum."
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Fleiri fréttir Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Sjá meira