Undarlegt hvarf fjölskyldu bresks auðmanns 29. ágúst 2008 19:09
Breska lögreglan leitar nú að þriggja manna fjölskyldu auðmanns sem ekkert hefur spurst til síðan á þriðjudag þegar öll hús á landareign þeirra voru brennd. Málið þykir allt lykta af því að brunanum hafi verið ætlað að fela ummerki um að fjölskyldan hafi verið myrt - eða að hún sé á flótta. Eftirlit er haft með höfnum og flugvöllum til að tryggja að fjölskyldan fari ekki úr landi, ef hún er þá á lífi. Þrír hestar fundust dauðir í rústum hesthússins og tveggja hunda er saknað. Eigandi þessarar miklu eignar er Christopher nokkur Foster. Hann bjó þarna með konu sinni og fimmtán ára gamalli dóttur. Eignin er talin hafa verið um 350 milljón króna virði - og Foster er forstjóri fyrirtækis sem framleiðir einangrunarvörur til nota í gas- og olíuvinnslu. Í ágúst á síðasta ári var fyrirtækið tekið til gjaldþrotaskipta og reyndist skulda allt að tveimur milljörðum króna. Þá kom í ljós að Christopher Folster hafði í marga mánuði verið að hirða allt verðmætt út úr fyrirtækinu og flutt á nafn nýs fyrirtækis í sama bransa, í sinni einkaeigu. Foster hafði einnig kært tvo menn fyrir fjárkúgun en þeir voru báðir sýknaðir af öllum kærum í nóvember 2006. Vinir Fosters hafa lýst honum sem kátum manni og vingjarnlegum en skiptastjórinn í gjaldþrotamálinu var á annarri skoðun. Hann sagði að Foster væri ekki treystandi og skorti almennt viðskiptasiðferði. Hjónin bárust mikið á í einkalífi sínu; óku Porche, Ferrari og Aston Martin bílum, og létu grafa fyrir stórri tjörn á landareigninni þar sem þau höfðu endur, gæsir og svani.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent „Vissi ég að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Fleiri fréttir Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira