Mæta eigin söluvöru yfir Pakistan Atli Steinn Guðmundsson skrifar 17. september 2008 10:12
Bandaríkjaher stendur nú frammi fyrir þeirri vandræðalegu stöðu að þurfa hugsanlega að bragða á eigin meðulum í háloftunum yfir Pakistan, nefnilega sínum eigin F-16-orrustuþotum sem þeir hafa verið iðnir við að selja þessum fyrrum vinum sínum um árabil. Um helgina flugu til dæmis slíkar vélar til móts við fjarstýrðar njósnavélar Bandaríkjamanna sem komu inn í pakistanska lofthelgi. Í neðri deild Bandaríkjaþings er nú rætt um hvort ekki sé rétt að skrúfa fyrir vopnasöluna, að minnsta kosti á meðan andrúmsloftið er svo lævi blandið. Þingnefnd hefur verið sett saman undir forystu Gary Ackerman sem löngum hefur gagnrýnt vopnasöluna í austur og meðal annars rökstutt með því að það skjóti skökku við að dæla háþróuðum orrustuþotum í Pakistana til að gera þeim kleift að berja á al-Kaída- og talíbanasveitum sem allar halda til innan landamæra Pakistans auk þess sem sá tilgangur sé einungis yfirskin því þessum leikföngum sé nú í æ ríkari mæli beitt sem grýlum gegn grönnunum Indlandsmegin eftir því sem hitnar í kolunum á þeim vígstöðvum. Times of India greindi frá.
Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Fleiri fréttir Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Sjá meira