Nauðgari fékk skilorðsbundinn dóm vegna seinagangs lögreglu 25. september 2008 16:35
Hæstirettur þyngdi í dag refsingu um þrjá mánuði yfir fertugum karlmanni sem dæmdur var fyrir að hafa haft samræði við konu og notfært sér að hún gat ekki spornað við verknaðinum sökum ölvunar, áhrifa fíkniefna og svefndrunga. Sannað þykir með vísan til framburðar konunnar og tveggja vitna auk DNA rannsóknar að maðurinn hefði framið þann verknað sem ákært var fyrir. Í héraði var maðurinn dæmdur í 12 mánaða fangelsi. Þar af voru níu mánuðir skilorðsbundnir, en Hæstiréttur lengdi skilorðsbundna hlutann í tólf mánuði. Í dómi Hæstaréttar segir að ákærði hafi framið brot sitt 10. ágúst 2003, en konan hafi kært hann 7. nóvember sama ár. Fyrsta lögregluskýrsla hafi verið tekin af ákærða 10. desember 2003. Lífsýni, sem tekin hafi verið til DNA-greiningar, hafi verið send til rannsóknar í Noregi og hafi niðurstaða hennar legið fyrir í apríl 2004. Ákærði hafi þá verið farin úr landi og haldið sig næstu árin í Danmörku og Noregi. Fram hafi komið að lögregla sendi fyrirspurnir um ákærða til yfirvalda í þessum löndum og beiðni um að hafa uppi á honum, sem hafi ekki hafa borið árangur fyrr en í mars 2007 þegar lögregluskýrsla hafi verið tekin af ákærða í Danmörku. Rannsókn málsins hafi þannig dregist mjög úr hófi. Viðleitni lögreglu til að ná til ákærða hafi verið stopul og ómarkviss, en eftir að niðurstaða rannsóknar í Noregi hafi legið fyrir hafi verið fullt tilefni fyrir lögreglu til að beita úrræðum, sem hún hafi tiltæk með alþjóðasamvinnu, til að finna ákærða og handtaka hann ef þyrfti til að geta lokið rannsókn málsins og senda það ákæruvaldinu til ákvörðunar um ákæru. Að þessu virtu verði ákærða ekki einum kennt um þann verulega drátt, sem hafi orðið á rannsókn málsins, og sé því óhjákvæmilegt með vísan til forsendna héraðsdóms að fresta fullnustu 12 mánaða af refsivist ákærða skilorðsbundið í 3 ár.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Erlent Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Innlent Fleiri fréttir „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Sjá meira