Álit mannréttindanefndar SÞ ótengt framboði til öryggisráðs 21. janúar 2008 15:59
Ingibjörg Sólrún Gíslasdóttir utanríkisráðherra segir nýtt álit mannréttindandnefndar Sameinuðu þjóðanna í máli tveggja sjómanna sem fóru kvótalausir á verðar ótengt framboði Íslands til Öryuggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Þetta kom fram í máli hennar í utandagskrárumræðu um framboðið. Kristinn H. Gunnarsson, þingflokksformaður Frjálslynda flokksins, benti á að Íslendingar hefðu í fjögur ár stefnt að því að taka sæti í öryggisráðinu á árunum 2009 og 2010 og kosið yrði í ráðið í haust. Sagði hann að opinberlega hefðu íslensk stjórnvöld lagt áherslu á virðingu fyrir mannréttindum og grundvallarreglum þjóðarréttar. Utanríkisráðherra hefði greint frá því að hann tæki álit mannréttindanefndar SÞ í máli sjómannanna alvarlega og hann fagnaði því og byggist við að ráðherra og flokkur hans beitti sér fyrir lagabreytingum í tengslum við fiskveiðikerfið. Hins vegar hefðu yfirlýsingar sjávarútvegsráðherra og forsætisráðherra þess efnis að álitið kallaði ekki á lagabreytingar vakið efasemdir um það hvað ríkisstjórnin hygðist gera í málinu og hvort nokkuð yrði gert. Spurði hann utanríkisráðherra hvort aðgerðaleysi yrði til þess að auka virðingu Íslands á alþjóðavettvangi og taldi sjálfur að trúverðugleiki framboðsins til öryggisráðsins væri í húfi ef ekkert væri gert varðandi álit SÞ. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra sagði Norðurlöndin starfa saman að framboði Íslands til öryggisráðsins. Þá sagði hún að í nútímanum væru mannréttindi heima og í heiminum öllum eitt og sama verkefnið og hún hefði rætt persónulega við 23 starfssystkina sinna í Afríku sem litu til Íslands sem fyrirmyndar. Þá sagði utanríkisráðherra að mannréttindanefnd SÞ starfaði á grundvelli samnings SÞ um borgaraleg réttindi. Hins vegar væri hlutverk öryggisráðsins að fjalla um frið og öryggi í heiminum og því væri ekki rétt að tengja saman framboðið og álit mannréttindanefndar SÞ. Íslensk stjórnvöld bæru virðingu fyrir Sameinuðu þjóðunum og stofnunum þeirra en það væri ótengt því hvort Íslendingar væru í framboði til öryggisráðsins.
Mest lesið „Stundin sem við höfum óttast er runnin upp“ Erlent Hermenn bauluðu á Biden, Newsom og blaðamenn Erlent Vinnuslys við Suðurlandsbraut Innlent Halla flytur hátíðarávarpið í stað Kristrúnar Innlent Tók smá snúning en aftur kominn á svipaðar slóðir Innlent Undirbúa flutning þúsunda til Guantánamo Erlent Þrjú ár fyrir að svíkja út 156 milljónir og leggja inn á fjölskylduna Innlent Sigurður Fannar játar að hafa banað dóttur sinni Innlent Dagur gáttaður á Viðskiptaráði: „Leigufélögin eru ekki andskotinn sjálfur“ Innlent Aðalmeðferð hafin í máli Sigurðar Fannars Innlent Fleiri fréttir Fastir á Keflavíkurflugvelli í þrjá daga án útskýringa Hvalurinn kominn út á haf Fastir í flugstöðinni í fjóra daga og Trump-Tesla í Keflavík Sigurður Fannar játar að hafa banað dóttur sinni Bein útsending: Eldhúsdagsumræður á Alþingi Máttu ekki tjalda á Arnarhóli Sterametið mölbrotið í Leifsstöð: Lögðu hald á um 9 lítra af sterum og 44 þúsund töflur Hæstiréttur staðfestir nauðgunardóm Najeb Kolbrún svarar í engu kröfu um að hún skuldi afsökunarbeiðni Vinnuslys við Suðurlandsbraut Fótboltagláp, ráfandi djammarar og nú fljúgandi nefhjól Stendur í stafni fyrir samevrópska nefnd WHO um lýðheilsu Dagur gáttaður á Viðskiptaráði: „Leigufélögin eru ekki andskotinn sjálfur“ Stórauka þjónustu Strætó í lok sumars Bein útsending: Byggjum til framtíðar – með gæði, heilnæmi og sjálfbærni að leiðarljósi Miklar breytingar hjá Play og nefhjól í lausu lofti Háhyrningurinn synti rakleiðis í strand Halla flytur hátíðarávarpið í stað Kristrúnar Olíudreifing sýknuð af tug milljóna króna bótakröfu Costco Segir Ísland stunda hvítþvott í svörum til SÞ Aðalmeðferð hafin í máli Sigurðar Fannars Tók smá snúning en aftur kominn á svipaðar slóðir Neitaði að borga fyrir leigubílinn og braut rúðu í lögreglubíl Hnattræn hlýnun gerði hitabylgjuna í maí hlýrri og mun líklegri en ella Háhyrning rak á land í Grafarvogi Reisa tuttugu bekki til minningar um Bryndísi Klöru Tilfinningaþrungin ræða á þingi SÞ: „Stolt, fötluð, og óendanlega þakklát“ „Hjólið fellur á flugi, auðvitað er það alvarlegt“ Þrjú ár fyrir að svíkja út 156 milljónir og leggja inn á fjölskylduna Endósamtökin lýsa yfir þungum áhyggjum Sjá meira