Verkefni færð frá LSH til annarra stofnana á suðvesturhorninu 21. janúar 2008 14:30
Landspítalinn og fjögur sjúkrahús á suðvesturhorni landsins undirrituðu í dag samning um tilfærslu verkefna frá Landspítalanum til hinna stofnananna. Fram kemur í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu að stofnanirnar sem um ræði séu Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, Sjúkrahúsið og heilsugæslustöðin á Akranesi, Heilbrigðisstofnun Suðurlands og St. Jósefsspítalinn og Sólvangur í Hafnarfirði. Þar segir einnig að markmið samningsins sé fyrst og fremst að nýta betur fagþekkingu á öllum stofnunum, að heilbrigðisþjónusta verði í ríkari mæli veitt í heimabyggð og að auka rafræn samskipti milli stofnananna. Bent er að að fjöldi sjúklinga komi á Landspítalann á hverjum degi vegna vegna margvíslegra bráðavandamála. Sjúklingar þurfi mislangan tíma til að ná sér eftir bráð veikindi og hafa aldraðir meiri þörf fyrir endurhæfingu að bráðameðferð lokinni en aðrir sjúklingar. Brýnt sé að hafa alltaf næg rými tiltæk fyrir bráðaþjónustu spítalans, en Landspítalinn er aðalsjúkrahús landsins og umdæmissjúkrahús höfuðborgarsvæðisins. Í samkomulaginu felst meðal annars að bráðaþjónusta Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja verði efld til muna og þá er gert ráð fyrir að stofnunin annist sjúklinga með lögheimili á Suðurnesjum sem þurfa líknandi meðferð eða bíða eftir hjúkrunarrými á sjúkrahúsi. Á Akranesi á að efla þjónustu á sviði öldrunarendurhæfingar, almennra lyflækninga, skurðlækninga og bæklunaraðgerða, og þá á að efla þjónustu St. Jósefsspítalans, sérstaklega á sviði meltingarsjúkdóma, skurðlækninga og á sviði sérhæfðrar öldrunarþjónustu. Þá er einnig gert ráð fyrir að efla bráðaþjónustu Heilbrigðisstofnunar Suðurlands með því að opna nýja slysa- og bráðamóttöku og draga úr flutningum sjúklinga frá Suðurlandi til Landspítalans. Einnig er gert ráð fyrir að stofnunin annist sjúklinga með lögheimili á Suðurlandi sem þurfa á líknandi meðferð að halda eða bíða eftir hjúkrunarrými en þurfa að dvelja á sjúkrahúsi. Þá á að samræma sumarstarfsemi allra stofnananna eins og kostur er með það að markmiði að nýta sjúkrarými þeirra sem best. Gert er ráð fyrir að áætlun um sumarstarfsemi stofnananna liggi fyrir eigi síðar en 1. apríl.
Mest lesið Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Sjá meira