Kallar klárlega á frekari skoðun sprautunotkunar Atli Steinn Guðmundsson skrifar 10. júní 2008 11:34 Rúna Guðmundsdóttir og Jóna Sigríður Gunnarsdóttir. MYND/Úr einkasafni „
Ég stefni á geðið og eitthvað vímuefnatengt," sagði Jóna Sigríður Gunnarsdóttir, sem útskrifast hjúkrunarfræðingur frá Háskóla Íslands næstkomandi laugardag, í spjalli við Vísi. Með ummælunum vísar Jóna Sigríður til þess að áhugi hennar standi helst til starfa á geðsviði. Þær Rúna Guðmundsdóttir kynntu í Fréttablaðinu í gær lokaverkefni sitt í hjúkrunarfræðinni sem fjallaði um sprautunotkun íslenskra fíkla. Um þriðjungur fíklanna kvaðst hafa neytt heróíns sem fíkniefnalögregla telur að muni festa rætur hér fyrr en síðar. „Þetta var bara það mest spennandi sem ég get hugsað mér, virkilega áhugavert og skemmtilegt," sagði Jóna Sigríður um rannsóknina. Þær Rúna ræddu við 69 fíkla sem voru ýmist í meðferð á Vogi eða vímuefnadeildum Landspítalans. Sagði hún fólkið hafa verið einstaklega opið og áhugasamt um að segja þeim Rúnu frá málum sínum. Umfangsmeiri kynning fram undan Jóna Sigríður telur niðurstöður rannsóknarinnar vissulega kalla á frekari skoðun. „Við erum enn þá að vinna úr þessu en það þarf klárlega að skoða betur hvernig vímuefnaneyslan er, hvaða efni er verið að nota og hvernig. Það er eitthvað sem hefur ekkert verið skoðað mjög mikið hér," sagði Jóna Sigríður og bætti því við að vinnan við verkefnið hefði tekið nánast heilt ár þótt hún hefði verið mismikil á hverjum tíma. „Hún var mjög mikil á köflum," sagði hún. Fram undan hjá þeim stöllum er umfangsmeiri kynning á verkefninu fyrir viðeigandi aðilum en þær hafa þegar kynnt embætti landlæknis verkefnið. Jóna Sigríður hefur ekki ráðið sig til starfa enn sem komið er en segist, eins og fram kemur í upphafi, vilja helga sig störfum á þessum vettvangi. Að lokum kvað Jóna Sigríður þær Rúnu vera ákaflega þakklátar starfsfólki Sjúkrahússins Vogs og vímuefnadeilda Landspítalans fyrir einstakt samstarf ásamt því sem þær kynnu leiðbeinanda sínum, dr. Helgu Sif Friðjónsdóttur, hinar bestu þakkir.
Mest lesið Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Erlent Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Fleiri fréttir Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Sjá meira