Síbrotamaður sendur í fangelsi 17. apríl 2008 10:48
Tvítugur Reykvíkingur var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í 11 mánaða fangelsi fyrir að hafa þrívegis ekið bifreið undir áhrifum vímuefna. Í tvö skipti af þessum þremur var maðurinn með fíkniefni í sinni vörslu. Maðurinn fékk 11 mánaða fangelsi fyrir þessi brot. Það þykir nokkuð þungur dómur. Eða alveg þangað til litið er á sakaferil mannsins. Hann var með dómi í desember 2006 sakfelldur fyrir fjögur þjófnaðarbrot, umboðssvik, gripdeild, heimildarlausa töku bifreiðar í fjögur skipti, brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og fyrir að hafa í sjö skipti ekið bifreið sviptur ökurétti. Fyrir þessa afbrotasúpu fékk maðurinn 20 mánaða fangelsi en inn í því var 12 mánaða skilorðsbundin fangelsisrefsing sem maðurinn hlaut 13. febrúar 2006 fyrir þjófnaðarbrot, stórfelld eignaspjöll og fíkniefnabrot. Þessu til viðbótar hefur maðurinn tvívegis gengist undir sektagreiðslu fyrir að aka bifreið yfir lögleyfðum hámarkshraða, en í fyrra skiptið var hann að auki sviptur ökurétti í 5 mánuði. Á sakavottorði mannsins eru þar að auki tilgreindar fjórar lögreglustjórasáttir frá 4. september 2006 fyrir akstur bifreiðar sviptur ökurétti. Loks var maðurinn með dómi 21. september 2007 sakfelldur fyrir þjófnað, fjársvik, nytjastuld og eignaspjöll, en ekki gerð sérstök refsing. Svo 11 mánaða fangelsi er kannski alveg sanngjarn dómur.
Mest lesið Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Innlent Líkfundur við Austurbæjarskóla Innlent Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu Innlent Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? Innlent Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni Innlent „Einfaldlega ók bifreið frá punkti A á punkt B“ Innlent Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Erlent Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Innlent Fleiri fréttir Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Leita karlmanns á sjötugsaldri Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Gripinn með stolið kreditkort og handtekinn Hafa borið kennsl á hinn látna Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Kveikt á götulýsingu í sólmyrkva á stofnbrautum Líkfundur við Austurbæjarskóla Hólmbert bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum í Kóreu Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Gera ráð fyrir óvenjulangri aðalmeðferð í Reykholtsmálinu Tók konu kyrkingartaki nóttina eftir dóm og verður lengur í haldi Segir efnahagsmálin og verðbólguna að þróast í rétta átt Kristrún vísar ásökunum um sinnuleysi á bug Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Vill að vinnu við gerð áhættumats verði flýtt Leita óþekkts árásarmanns á Þjóðhátíð Kæra varðhald þriðja mannsins til Landsréttar Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Þriðji maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald Líkur á rigningu í Reykjavík þegar almyrkvinn gengur yfir Gæsluvarðhalds krafist yfir þriðja manninum Björgunarsveitir sinntu tveimur slösuðum ferðamönnum Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu ,,Þetta eru kosningaherferðarfundir Kristrúnar Frostadóttur fyrir Já til að sjá'' Fyrir fólk sem búi á almyrkvaslóðinni sé nóg að „vera úti í garði og upplifa allt“ Sjá meira