Erlent

NATO í tilvistarkreppu - Ræður ímyndarsérfræðing frá Coke

Steinþór Helgi Arnsteinsson skrifar
Ráðamenn ríkja NATO á fundi í Búkarest.
Ráðamenn ríkja NATO á fundi í Búkarest.

Stjórnarherrar Atlantshafsbandalagsins (NATO) hafa ákveðið að ráðast í markaðsherferð til þess að styrkja ímynd bandalagsins. Bandalagið virðist svo sannarlega í einhvers konar tilvistarkreppu því til þess að hjálpa sér hefur það fengið til liðs við sig einn aðalímyndarsérfræðing Coca-Cola fyrirtækisins. Frá þessu greinir The New York Times í gær.

Lögmæti bandalagsins í húfi

NATO fagnar sextíu ára afmæli sínu á næsta ári en á tímum alþjóðavæðingar og brottnám gömlu austur og vestur blokkanna þarfnast bandalagið greinilega endurskipulagningar á hugmyndafræði sinni. Hér áður fyrr stóð NATO vörð um vestrið gegn austrinu en í dag eru aðalvígstöðvarnar í Afganistan og fundarsölunum í Brussel.

„Ef fólk finnur ekki tenginguna á milli þess hvað hermennirnir eru að gera og þeirra eigin öryggi, þá er lögmæti [NATO] í húfi," sagði Jean- François Bureau, háttsettur embættismaður hjá NATO, í viðtali við The New York Times.

Álit almennings versnar

Nýlegar viðhorfskannanir eru NATO ekki í hag. Þrátt fyrir að fjöldi þeirri sem telja að NATO sé nauðsynlegt fyrir öryggi heimsins aukist um 4% í Bandaríkjunum frá árunum 2002 til 2007 dregst hann saman um 19% í Þýskalandi, 13% í Ítalíu og 12% í Bretlandi.

Þess fyrir utan er talið að aðeins mjög lítill hluti íbúanna innan NATO þekki almennilega hvert hlutverk og tilgangur bandalagsins er.

Danir borga fyrir NATO TV

Til að mæta þessari ímyndarkreppu NATO hefur bandalagið sett á laggirnar sérstaka sjónvarpsstöð á netinu en hún verður í upphafi fjármögnuð af Dönum. Tilgangur hennar verður að koma í veg fyrir síur óháðra fjölmiðla sem talsmaður NATO segir að einblíni of mikið á neikvæðar fréttir.

Ráðamenn í Brussel gera sér grein fyrir að þeir standa frammi fyrir erfiðu verkefni og að breyta ímynd NATO hefst ekki yfir eina helgi. Þeir vita að upprunalegur tilgangur bandalagsins er brostinn og spurningin er því einfaldlega: „Hver er tilgangur NATO?"








Fleiri fréttir

Sjá meira


×