Bláberjavindlar í Drekasjoppu 29. desember 2008 03:00 Það er ekki allt sama tóbakið hjá Snorra Guðmundssyni. fréttablaðið/Arnþór „
Það eru engar ýkjur að sala á vafningstóbaki hefur þrefaldast síðustu mánuðina,“ segir Snorri Guðmundsson í söluturninum Drekanum á Njálsgötu. „Ég veit ekki hvernig þetta er annars staðar, en hér í 101 er fólk vant að vefja sér jónur. Tóbakið hefur hækkað svo gríðarlega á stuttu tímabili og þetta kemur lítið á óvart. Það er mikill sparnaður í að vefja sjálfur.“ Snorri hefur verið í sjoppurekstri lengi og þekkir þróunina í sölu vafningstóbaks. „Þegar ég vann á bensínstöð með pabba fyrir einum 15 árum seldist kannski einn pakki á viku, en núna fara allavega 80-100 pakkar á viku.“ Í Drekanum má fá tóbak frá Drum og Balishag, en Drum er uppselt á landinu eins og er. „Fólk er mikið að biðja um fleiri tegundir. Úti er hægt að fá 20-30 tegundir, til dæmis í Noregi þar sem ég þekki til.“ Þótt Snorri bjóði ekki upp á aðrar tóbakstegundir til að vefja býður hann upp á mikið úrval af alls konar framandi vafningspappír, bæði til að vefja sígarettur og vindla. „Við sérhæfum okkur í þessu og flytjum þetta inn sjálfir. Það selst glettilega mikið af þessu. Það er hægt að fá pappír með gríðarlega fjölbreyttu bragði, sirka hundrað tegundir. Það eru næstum allar hugsanlega bragðtegundir í þessu: vanillu, „cotton candy“, melónu og banana, svo ég nefni bara eitthvað. Vindill með bláberjabragði, það er til dæmis ekki amalegt! Sumir eru að prófa hitt og þetta og stelpurnar eru mjög hrifnar af kirsu- og jarðaberjabragðinu.“ Snorri hefur ekki hugmynd um hvernig þetta smakkast því hann er löngu hættur að reykja. „Já, ég sigraðist á þeim djöfli. Nú sel ég bara öðrum hann í góðum fílingi!“
Mest lesið „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Lífið Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Lífið „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Lífið Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Lífið Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Lífið „Ég vil ekki líkjast öllum öðrum“ Tíska og hönnun „Við teljum að þetta verði sögulegir tónleikar“ Tónlist Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest Lífið Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Lífið Fleiri fréttir Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum Sjá meira