Lífeyrisréttindi skerðast vegna kreppunnar 7. október 2008 14:22 Hrafn Magnússon er framkvæmdastjóri Landssambands lífeyrissjóða
Eignir lífeyrissjóða landsins munu rýrna vegna ástands á fjármálmörkuðum og neyðarlaga Alþingis sem þýðir að lífeyrisréttindi skerðist á næsta ári. Þetta kemur fram í tilkynningu Landsamtaka lífeyrissjóða. Stjórn samtakanna fundaði í dag um aðgerðir stjórnvalda og segir í tilkynningunni að samtökin hafi skilning á aðgerðunum enda hafi í raun blasað við neyðarástand að óbreyttu með ófyrirsjáanlegum afleiðingum fyrir fjölskyldur, fyrirtæki og allt fjármála- og efnahagskerfi landsmanna. Þá segja samtökin að þau hafi komið að viðræðum við stjórnvöld um aðgerðir um helgina, með því að flytja allt að helming erlendra eigna sinna til landsins til að styrkja íslenska krónu. Engir samningar þar að lútandi hafi hins vegar átt sér stað og ef ríkisstjórnin sjái ástæðu til að taka þennan þráð upp við lífeyrissjóðina á nýjan leik muni forystusveit Landssamtaka lífeyrissjóða fjalla um erindið í ljósi þess að allar aðstæður hafa gjörbreyst með neyðarlögunum frá Alþingi og afleiðingum þeirra. „Lífeyrissjóðir áskilja sér þannig allan rétt til að fjalla um málið á nýjum forsendum og komast að niðurstöðu í samræmi við þær," segir í tilkynningunni. Þá segjast samtökin gera sér grein fyrir að íslensk þjóð glími við mikinn vanda og lífeyrissjóðir, líkt og aðrir, taki þátt í aðgerðum sem miða að því að komast út úr þrengingunum. Landssamtök lífeyrissjóða beini því þannig til stjórna og stjórnenda lífeyrissjóða í landinu að koma til móts við lántakendur eins og aðstæður leyfa hverju sinni.
Mest lesið Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Fleiri fréttir „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Sjá meira