Erlent

Philip drottningamaður á sjúkrahúsi

Prinsinn hitt Cörlu Bruni nýbakaða eiginkonu Nicolas Sarkozy Frakklandsforseta á dögunum þegar hjónin heimsóttu Bretland.
Prinsinn hitt Cörlu Bruni nýbakaða eiginkonu Nicolas Sarkozy Frakklandsforseta á dögunum þegar hjónin heimsóttu Bretland. MYND/AFP

Hertoginn af Edinborg, eiginmaður Elísabetar Englandsdrottningar, var lagður inn á sjúkrahús í Lundúnum í gærkvöldi vegna lungnakvilla. Engar upplýsingar hafa verið gefnar um líðan hans. Filipus prins er 86 ára gamall. Þau hjónin hafa verið gift í rúm sextíu ár.

Hertoginn hefur oftar en einu sinni komist á forsíður breskra blaða fyrir hvatvísleg ummæli. Síðast var það í heimsókn í ónefnda verksmiðju. Þar sá hann rafmagnstöflu sem honum þótti illa frágengin og sagði; „Það er eins og Indverji hafi gert þetta."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×