Erlent

Sjóræningjar ræna franskri snekkju

Þyrla flýgur yfir skip sem sigldi undir fána kvikmyndarinnar Pirates of the Caribbean í siglingakeppni.
Þyrla flýgur yfir skip sem sigldi undir fána kvikmyndarinnar Pirates of the Caribbean í siglingakeppni. MYND/AFP

Sómalskir sjóræningjar hafa farið um borð í franska lystisnekkju undan ströndum Sómalíu og tekið alla 30 um borð til fanga. Talsmaður franska hersins greindi frá þessu og sagði gíslana vera úr áhöfn bátsins.

Lúxussnekkjan var á leið frá Sómalíu til Jemen. Engir farþegar voru um borð.

Hafsvæðið við Sómalíu þykir með hættulegustu hafsvæðum í heimi þrátt fyrir að bandaríski sjóherinn vakti svæðið. Á síðasta ári tóku sjóræiningjar meira en 25 skip á þessum hluta Indlandshafs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×