Erlent

Forseti Georgíu samþykkir vopnahlé

Mikheil Saakashvili forseti Georgíu og Condaleezza Rice utanríkisráðherra Bandaríjanna.
Mikheil Saakashvili forseti Georgíu og Condaleezza Rice utanríkisráðherra Bandaríjanna. Mynd/AP

Mikheil Saakashvili samþykkti í dag vopnahlé til þess að enda átök við Rússa vegna aðskilnaðarhéraðsins Suður-Ossetíu. Hann tilkynnti þetta fyrir utan forsetahöllina í Tbilisi, höfuðborg Georgíu við hlið Condoleezzu Rice utanríkisráðherra Bandaríkjanna.

Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands hefur fagnað samþykktinni og telur nú tíma fyrir Öryggisráð Sameinuðu Þjóðjanna að finna lausn fyrir Georgíu. Rússar hafa hins vegar neitunarvald í Öryggisráðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×