Innlent

Tókst að flýja vegna mistaka og bilunar í búnaði

Mannleg mistök og bilun í búnaði urðu til þess að þremur ungmennum, sem úrskurðuð voru í gæsluvarðhald á Akureyri í gær, tókst í gærkvöldi að strjúka úr fangelsinu þar.

Þau brutust umsvifalaust inn í mannlaust íbúaðrhús, stálu þaðan ýmsum verðmætum og bíl fyrir utan og lögðu af stað til Reykjavíkur. Þegar ljóst varð að fangarnir voru sloppnir voru settir vegatálmar á helstu leliðir frá bænum og voru ungmennin handtekin í Varmahlíð.

Þaðan var fólkið aftur flutt í fangelsið á Akureyri, en það var úrskurðað í gærluvarðhald vegna fjölda afbrota þar í bæ og víðar um landið.

Guðmundur Gíslason, forstöðumaður fangelsisins, sagði í viðtali við fréttastofnuna nú fyrir hádegi að verið væri að kanna atburðarrásina, en í fljótu bragði virtist mega rekja þetta til mannlegra mistaka og bilunar í búnaði sem olli því að einn fanganna komst út úr klefa sínum, gat opnað fyrir hinum tveimur og allir komust svo út á meðan eini fangavörðurinn á vakt var á annari hæð í fangelsinu.

Húsnæðið og búnaður þar væri ófullnægjandi og búið væri að gera áætlanir um endurbætur en þær væru ekki komnar til framkvæmda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×