Samtök atvinnulífsins gagnrýna 90% lán Íbúðalánasjóðs 1. mars 2007 14:51 MYND/Vilhelm
Hækkun lánshlutfalls í 90% og hámarksláns Íbúðalánasjóðs í 18 milljónir á eftir virka sem verðbólgufóður engum til gagns, segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Vilhjálmur segir í leiðara Fréttabréfs SA, að félagsmálaráðherra hafi leikið mikinn afleik með hækkuninni, en við gerð kjarasamninga í fyrrasumar hafi Samtök atvinnulífsins þvert á móti lagt áherslu á lækkun lánshlutfallsins til þess að stemma stigu við síhækkandi íbúðaverði og tryggja lækkun verðbólgunnar. Ákvörðunin gangi þannig þvert á ákvörðun ríkisstjórnarinnar í kjölfar kjarasamninganna. Einnig segir í leiðaranum: "Þessi ráðstöfun er þeim mun bagalegri þar sem nú í dag hinn 1. mars tekur gildi lækkun virðisaukaskatts á matvæli og fleiri vörur auk tollalækkana á búvörum og niðurfellingar ýmissa vörugjalda á matvæli. Verð á matvælum, veitingaþjónustu og nokkrum öðrum vörum lækkar af þeim sökum. Þessar aðgerðir eru að langmestu leyti skref í rétta átt til þess að bæta skattkerfið og lækka þar að auki útgjöld heimilanna. Þær koma fram í lægri verðbólgumælingu nú en hafa þó ekki áhrif á verðbólguna til lengdar þótt aukin eftirspurn geti falið í sér ákveðna verðbólguhættu en það sama má reyndar segja um allar skattalækkanir. Verðbólguhættan til lengri tíma af skattalækkunum er sýnu minni ef hagkerfið er í þokkalegu jafnvægi eða stefnir í þá átt eins og nú."
Mest lesið Sex sagt upp í menntamálaráðuneytinu Innlent Vél Trump snúið við en ræðan enn á dagskrá Erlent Hvað býr bakvið sólgleraugu Macron? Erlent Vinnuslys þar sem maður „missti höndina inn í vals“ Innlent Óvæntur blaðamannafundur: Las „afrekabókina“ og sýndi myndir af glæpamönnum Erlent Davos-vaktin: Beðið eftir ræðu Trumps Erlent Hættur í Viðreisn og sækist eftir formennsku í SI Innlent Baráttan um Framsókn muni snúast um sögulega stöðu Innlent Neituðu að greiða starfsfólki á leið í eigin rekstur uppsagnarfrest Innlent Morðingi Abe dæmdur í lífstíðarfangelsi Erlent Fleiri fréttir Hátt í tíu þúsund manns án atvinnu í desember Sex sagt upp í menntamálaráðuneytinu Hættur í Viðreisn og sækist eftir formennsku í SI Vinnuslys þar sem maður „missti höndina inn í vals“ Baráttan um Framsókn muni snúast um sögulega stöðu Ráðherra segir ríkisvaldið gefa í með framkvæmdir Sverrir Bergmann hættir í bæjarstjórn Norðfirðingar gleðjast að sjá loðnuna birtast Annasamasti dagur á bráðamóttöku í lækna minnum Neituðu að greiða starfsfólki á leið í eigin rekstur uppsagnarfrest Gríðarleg fjölgun hótana og dæmi um að setið sé fyrir lögreglumönnum Kvaðst hafa drepið fjölskylduna og ætlað að stinga sig í hjartað Ofbeldi gegn lögreglumönnum magnast og baráttan hafin um Framsókn Nemi í jarðfræði hlaut Nýsköpunarverðlaunin „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Brynjar skýtur föstum skotum á Flokk fólksins „Fyrsta ár ríkisstjórnarinnar hefur mistekist“ Magnús Eiríksson borinn til grafar Heitt í hamsi vegna Grænlands Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Dýr framtíðarlausn að færa þjóðveginn vegna grjóthruns Borgarstjórn biður vöggustofubörnin afsökunar Eldgos á næstu vikum enn líklegasta niðurstaðan Sjö tilkynningar um heimilisofbeldi að jafnaði á dag „Ekki gott að fólk sé endalaust að sulla svona í víni“ Styrkleiki að formaður Framsóknar eigi sæti á þingi Þrjátíu á slysadeild vegna hálku og sjúkrabílar á leiðinni með fleiri Mannréttindaráðið ræðir Íran að frumkvæði Íslands Fimm starfslokasamningar kostað Hafró 35 milljónir Ögranir Trumps halda áfram og tugir leituðu á bráðamóttöku í hálkunni Sjá meira