Innlent

Varað við Nígeríubréfum

MYND/Ljósamyndadeild

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú mál þar sem Íslendingur lét glepjast af svokölluðu Nígeríubréfi. Slík bréf innihalda gylliboð sem ekki er innistæða fyrir og eru þau til þess eins að svíkja peninga af fólki. Lögreglan varar fólk fyrir að þiggja slík boð og segir marga Íslendinga hafa látið glepjast og er fjárhaglegt tjón þeirra umtalsvert.

 

Lögreglan segir dæmi um að slíkum bréfum sé fólki sagt að því bíði vænn arfur en viðkomandi er fenginn til að leggja fram ákveðna upphæð sem vindur hratt upp á sig. Einnig er vinsælt að nota happdrættisvinninga í blekkingarskyni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×