Innlent

Suðurlandsvegur verði tvöfaldaður í áföngum

MYND/GVA

Samkvæmt nýjustu drögum að vegaáætlun verður Suðurlandsvegur breikkaður og gerður að 2+2 vegi í áföngum. Frá þessu greinir Sunnlenska fréttablaðið og vitnar í heimildarmenn sína. Drögin hafa að undanförnu verið til umfjöllunar í þingflokkum stjórnarflokkanna og hefur verið hart tekist á um þau.

Sunnlenska segir enn fremur að í drögum sem kynnt hafi verið þingmönnum Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks fyrir um viku hafi verið gert ráð fyrir að byggður yrði 2+1 vegur á milli Selfoss og Reykjavíkur. Hins vegar sé samstaða meðal sveitarstjórnarmanna á Suðurlandi og þingmanna kjördæmisins um að tvöfalda veginn þegar tekið sé tillit til öryggis- og byggðasjónarmiða.

Niðurstaðan verði að líkindum að farið verði bil beggja, vegurinn verði tvöfaldaður en framkvæmdin taki lengri tíma en heimamenn vilja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×