Innlent

Vilja stofna Loftlagsráð Reykjavíkurborgar

MYND/Pjetur

Borgarfulltrúar Vinstri - grænna lögðu til á fundi borgarráðs í dag að stofnaður yrði þverpólitískur starfshópur stjórnmálamanna og embættismanna, svokallað Loftlagsráð Reykjavíkurborgar, til þess að bregðast við upplýsingum í nýrri skýrslu um loftlagsmál.

Vilja Vinstri - græn að allar áætlanir borgarinnar í skipulags-, umhverfis- og samgöngumálum verði endurskoðaðar þannig að hægt verði að hefjast nú þegar handa við að draga stórlega úr losun gróðurhúsalofttegunda í Reykjavík og bæta þannig umhverfi og vellíðan borgarbúa.

Í greinargerð með tillögunni kemur fram að matsskýrsla Sameinuðu þjóðanna, sem kynnt hafi verið 2. febrúar, sé mun afdráttarlausari en fyrri skýrslur. Hún staðfesti að loftslagsbreytingar séu staðreynd og að yfirgnæfandi líkur séu á að þær séu af mannavöldum.

Ekki verði hægt að segja annað en að skýrslan dragi upp dökka mynd af stöðu loftslagsmála í heiminum og framtíðarhorfum jarðarbúa. Niðurstöðurnar beri að taka alvarlega, ekki síst í ljósi umsagna um skýrsluna þar sem fram komi að hún standi á mun öruggari vísindalegum grunni en fyrri skýrslur.

„Með því að stofna Loftslagsráð Reykjavíkurborgar sýnir borgarstjórn í verki vilja sinn til að taka snarlega til hendi og gera það sem í þeirra valdi er til að bregðast við aðsteðjandi vanda. Í ráðinu sitji fulltrúi allra flokka sem fulltrúa eiga í borgarstjórn Reykjavíkur, en auk þess sviðstjórar þeirra sviða sem sérstaklega fást við umhverfismál. Þverpólitískt ráð skapar skilyrði fyrir að sem flest sjónarmið komi fram sem eykur líkur á breiðri samstöðu um niðurstöður," segir enn fremur í greinargerðinni.

Afgreiðslu á tillögunni var frestað á milli funda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×