Innlent

Setti bát á brennu án leyfis eiganda

Ísafjörður.
Ísafjörður. MYND/GVA

Karlmaður, sem gefið var að sök að hafa tekið bát í leyfisleysi og sett hann á brennu, var í Héraðsdómi Vestfjarða í dag sýknaður. Maðurinn var ábyrgðamaður áramótabrennu sem haldin var á Vestfjörðum í árslok 2003.

Báturinn sem um ræðir hafði staðið um hríð við Ísafjarðarhöfn og var orðinn ónýtur. Maðurinn fékk leyfi hjá öðrum eiganda bátsins til að setja hann á brennuna. Seinna kom í ljós að sá sem leyfið hafði gefið hafði selt hinum eiganda bátsins sinn hlut og hafði því ekkert með hann að gera. Dómurinn taldi að ekki hefði verið um ástening af hendi ábyrgðarmannsins að ræða og sýknaði hann.

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×