Innlent

Spyr hvort Bandaríkjamenn hafi leitað stuðnings vegna Íransmáls

MYND/Sigurður Jökull

Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri - grænna, hefur lagt fram fyrirspurn til forsætisráðherra um það hvort Bandaríkjamenn hafi leitað hófanna hjá ríkisstjórn Íslands um svipaðan stuðning við hugsanlegan hernað gegn Íran og aflað var í aðdraganda innrásarinnar í Írak.

Jafnframt spyr Steingrímur um afstöðu ríkisstjórnarinnar til slíkrar beiðni ef hún hafi verið lögð fram eða verði lögð fram. Eins og kunnugt er deila Íranar og Vesturveldin nú um kjarnorkuáætlun Írans sem Vesturveldin segja yfirskin fyrir framleiðslu kjarnavopna. Hafa Bandaríkjamenn ekki útilokað að beita hervaldi gegn Írönum af þessum sökum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×