Innlent

Stúdentaráðskosningar í HÍ í dag

Úrslit ættu að liggja fyrir í kringum miðnætti.
Úrslit ættu að liggja fyrir í kringum miðnætti. MYND/Vilhelm

Stúdentar við Háskóla Íslands kjósa í dag hverjir leiða Stúdentaráð skólans og hverjir sitja Háskólafund næsta árið. Þrjár fylkingar bjóða fram H-listinn, Röskva og Vaka. Notuð er miðlæg kjörskrá og stúdentar geta því valið sér kjördeildir á háskólasvæðinu eftir hentugleika.

Opið er í kjördeildum til klukkan 18:00 og ættu úrslita að liggja fyrir í kringum miðnætti.

Kjördeildir eru á eftirfarandi stöðum: Aðalbyggingu, Árnagarði, Odda, VR II, Lögbergi, Háskólabíói, Haga, Öskju, Skógarhlíð, Eirbergi, Læknagarði og Þjóðarbókhlöðu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×