Mikið ójafnvægi í þjóðarbúskapnum að mati Seðlabanka 8. febrúar 2007 12:06
Seðlabankamenn segja að enn sé mikið ójafnvægi í þjóðarbúskapnum, meðal annars vegna gríðarlegs viðskiptahalla og útiloka því ekki að stýrivextir muni hækka enn frekar á árinu þótt bankinn hafi ákveðið í morgun að halda stýrivöxtum óbreyttum að sinni. Seðlabakinn tilkynnti í morgun að stýrivextir verði óbreyttir í 14,25 prósentum næstu tvo mánuðina eða svo, eða þar til í lok mars þegar bankinn tekur næst ákvörðun um vexti. Þótt verðbólga sé enn langt yfir markmiðum bankans, segja forráðamenn hans að verðbólga sé nú minni en áætlað var og verðbólguhorfur til skamms tíma séu góðar. Því kunni verðbólgumarkmiðum bankans að verða náð við núverandi vaxtastig innan 24ra mánaða. "Á hinn bóginn er enn mikið ójafnvægi í þjóðarbúskapnum. Gríðarlegur viðskiptahalli felur í sér að stöðugleiki krónunnar er háður vilja alþjóðlegra fjárfesta og lánadrottna til að fjármagna hann," sagði Davíð Oddsson, formaður bankastjórnar Seðlabankans í morgun. Davið segir að reynslan sýni að jafnvel hóflegar breytingar í alþjóðlegum fjármálaskilyrðum geti haft veruleg áhrif á á sveiflur á gengi gjaldmiðla. Ef það leiddi til gengisfalls krónunnar myndi verðbólga aukast á ný, einkum ef það gerðist á sama tíma og mikil spenna ríkti á vinnumarkaði. "Enn sjást þess fá merki að farið sé að draga úr henni og laun hafa hækkað lang umfram framleiðni undanfarin ár," sagði seðlabankastjóri. Frekari verðlagsáhrif þess gætu átt eftir að koma fram. Versni verðbólguhorfur á ný muni baninn bregðast við. Það þýðir að þá mun bankinn hækka stýrivexti á ný. Þá er forsenda lækkunar vaxta að útflutningur aukist og eftirspurn á innanlands, eða neysla, minnki, þannig að verulega dragi úr gríðarlegum viðskiptahalla.
Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Erlent Fleiri fréttir Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Sjá meira