Úttekt: Hvað græða liðin á að reka stjórann? 22. ágúst 2007 16:21 Jol gæti orðið sá fyrsti til þess að verða rekinn á tímabilinu.
Martin Jol og Sammy Lee þykja líklegir kandídatar í að verða fyrstu knattspyrnustjórarnir til þess að taka pokann sinn á þessu tímabili. Vísir rifjar hér upp hverju það hefur skilað liðum á síðustu árum að reka knattspyrnustjórann svo snemma á leiktíðinni. Tímabil: 2006/2007 Fyrstur að taka pokann: Ian Dowie, rekinn frá Charlton þann 13. nóvember. Þrátt fyrir að hafa gefið Alan Curbishley 15 ár, ákvað stjórn Charlton að gefa Ian Dowie aðeins 15 leiki með félaginu. Eftir að fjölmiðlar höfðu birt nokkra fréttir þess efnis að Dowie hefði lent í útistöðum við leikmenn ákvað stjórnin að fá Les Reed til að taka við klúbbnum. Charlton var þá neðst eftir 15 leiki. Þrír þeirra voru reyndar gegn Man Utd, Chelsea og Arsenal. Hvað gerðist svo: Charlton féll um deild. Tímabil: 2005/2006 Fyrstur að taka pokann: Alain Perrin, rekinn frá Portsmouth þann 24. nóvember. Bjargvætturinn frá tímbilinu áður fékk opinbera stuðningsyfirlýsingu frá Milan Madaric, eiganda Portsmouth, þann 23. nóvember. Daginn eftir var hann rekinn. Portsmouth var þá einu sæti frá falli með fjóra sigra. Harry Redknapp tók við liðinu og um jólin var Portsmouth komið í botnsætið. Hvað gerðist svo: Portsmouth hélt sér uppi naumlega, tveim stigum frá falli. Árinu áður hafði Perrin haldið klúbbnum uppi, einnig naumlega en þó sex stigum frá fallsæti sem er fjórum stigum betra en Redknapp. Tímabil: 2004/2005 Fyrstur að taka pokann: Paul Sturrock, rekinn frá Southampton þann 23. ágúst. Sturrock fékk Southampton starfið í mars og var rekinn fimm mánuðum síðar, aðeins tveim leikjum eftir að tímabilið hófst. Og annar af þeim vannst, 3-2 sigur á Blackburn. Það þótti samt ekki nógu gott og Steve Wigley fékk því starfið. Hann þraukaði ekki í nema þrjá mánuði og var rekinn í nóvember. Þá var Harry Redknapp fenginn til liðsins frá erkifjendunum í Portsmouth við litla hrifningu stuðningsmanna. Hvað gerðist svo: Southampton féll um deild. Tímabil: 2003/2004 Fyrstur að taka pokann: Glenn Hoddle, rekinn frá Tottenham þann 29. september. Hoddle var rekinn eftir að Tottenham hafði aðeins unnið einu sinni í sjö leikjum. Hoddle bar því við að aðstoðarmaður hans David Pleat hefði skipt sér of mikið af. Pleat þessi fékk svo starfið hans Hoddle og hélt því út tímabilið. Hvað gerðist: Tottenham féll um fjögur sæti frá árinu tímabilinu áður og endaði í 14. sæti Tímabil: 2002/2003 Fyrstur að taka pokann: Peter Reid, rekinn frá Sunderland þann 7. október. Þrátt fyrir að hafa verið sjö ár við stjórnvölinn og komið Sunderland í úrvalsdeild og það í sjöunda sætið, tók það stjórnina aðeins níu leiki til að missa þolinmæðina á Peter Reid. Howard Wilkinson var fenginn til liðsins en reyndist beinlínis verri en enginn, sá var rekinn í mars. Þá tók við Mick McCarthy. Hvað gerðist: Sunderland féll með 19 stig.
Mest lesið Faðir leikmanns Grindavíkur gagnrýnir liðið: „Fyrir neðan allar hellur“ Körfubolti Óhugnanlegt atvik á Brúnni Enski boltinn Furðar sig á æðibunuganginum: „Bæði lið fá að bíða jafn stutt“ Körfubolti Uppgjörið: FH - Valur 37-36 | FH knúði fram oddaleik í maraþonleik Handbolti Titilvonir City tóku á sig skell í kvöld Enski boltinn Umfjöllun: Valur 85-79 Grindavík | Einvígið fer í oddaleik Körfubolti „Nú er það bara kassinn út á fimmtudaginn“ Handbolti Fylkir kláraði Vestra í seinni hálfleik Fótbolti „Get alveg lofað þér því að honum leiddist þetta ekkert“ Handbolti „Leið eins og við værum búnir að vinna þennan leik svona fimm sinnum“ Handbolti Fleiri fréttir Titilvonir City tóku á sig skell í kvöld Óhugnanlegt atvik á Brúnni Forest skellti Chelsea Gætu þurft að tapa til að komast í Meistaradeild Evrópu Segir að óásættanlegt tímabil Liverpool megi ekki endurtaka sig Brjálaður út í eigin leikmenn: „Hafa sóað heilu ári af mínum ferli“ Aron búinn að skipta um skoðun og vill Carrick áfram Slot við Hjörvar: „Ég held að öllum hafi liðið þannig“ Mjög brugðið við fréttirnar af Ferguson Sjáðu sigurmark Mainoo og Tottenham stökkva upp úr fallsæti „Svona hefur þetta verið allt mitt líf“ Tottenham kom sér upp úr fallsæti Ferguson fluttur á spítala Rúlluðu Palace upp og komnir í Evrópusæti Mainoo tryggði sigur eftir að United gaf tvö mörk Isak aftur meiddur Sjáðu öll mörkin úr enska boltanum: Gyökeres og Saka í banastuði fyrir Skytturnar Hélt á lofti og lofaði Newcastle að Sádarnir myndu ekki selja Benóný lauk deildinni á marki og fer í umspilið Skytturnar með sex stiga forystu á toppnum Tap West Ham gefur Tottenham von Hollywood-liðið missir af umspili og Ipswich í ensku úrvalsdeildina Guardiola léttur: „Slakir þjálfarar og skítaleikmenn“ Laglegt hjá Leeds sem forðast fall Færði tíðindi af Salah á blaðamannafundi í morgun Mainoo áfram í Manchester næstu árin Parker hættur hjá Burnley | Tekur Gerrard við? Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Sjá meira