Fótbolti

Svona var landsliðsþjálfaratími McClarens

Ballið er búið hjá Steve McClaren.
Ballið er búið hjá Steve McClaren.

Steve McClaren var í dag rekinn úr starfi sínum sem þjálfari enska landsliðins í fótbolta. Hér fyrir neðan má sjá há- og lágpunkta á meðan McClaren var við stjórnvölinn.



1. ágúst, 2006

Tekur við af enska landsliðinu af Sven-Göran Eriksson

11. ágúst

Velur David Beckham ekki í fyrsta landsliðshóp sinn og segir "Ég er að byggja upp lið til framtíðar og David var ekki inni í þeim áformum."

16. ágúst

Vinnur 4-0 sigur á Grikkjum í vináttuleik þar sem nýi fyrirliðinn John Terry skorar með skalla. Stjórnartíð McClaren byrjar með látum.

2. september

England vinnur fyrsta alvöruleik sinn undir stjórn McClaren þar sem Jermain Defoe skorar eitt marka Englands í 5-0 sigri á grátlega lélegu liði Andorra.

6. september

Englendingar vinna Makedóna 1-0 á útivelli þar sem Peter Crouch skorar og tryggir McClaren fyrsta útisigur sinn með enska liðið.

7. október

McClaren finnur fyrst fyrir pressunni þegar Englendingar ná aðeins markalausu jafntefli við Makedóníu á heimavelli. Enska þjóðin byrjar að kalla eftir því að Beckham verði kallaður inn í hópinn á ný til að hressa upp á andleysið í liðinu.

15. október

Englendingar gera 1-1 jafntefli við Hollendinga í vináttuleik. Frammistaðan þykir lofa góðu um framheldið.

7. febrúar 2007

Enska liðið tapar 1-0 fyrir Spánverjum í vináttuleik þar sem McClaren gefur mönnum utan kjarnans tækifæri til að sanna sig.

24. mars

Englendingar gera markalaust jafntefli við Ísraela. Tvö töpuð stig í viðbót fyrir enska liðið í undankeppninni og gagnrýnin eykst til muna á McClaren eftir enn eina andlausa frammistöðuna.

28. mars

Englendingar fara til búningsherbergja undir háværu bauli stuðningsmanna í hálfleik gegn Andorra þar sem staðan var 0-0. Þeir komu til baka í síðari hálfleik og skoruðu þrjú mörk (Gerrard 2, Nugent) til að bjarga McClaren frá niðurlægingu.

1. júní

McClaren gengur glottandi af velli eftir að Englendingar gera 1-1 jafntefli við Brasilíu í vináttuleik á Wembley.

6. júní

Englendingar næla í þrjú skyldustig í 3-0 sigri á Eistum.

22. ágúst

Frank Lampard skorar fyrir Englendinga en það nægir ekki þegar liðið tapar 2-1 í vináttuleik gegn gömlu erkifjendunum Þjóðverjum.

8. september

McClaren fer að glotta aftur eftir að enska liðið vinnur nokkuð auðveldan 3-0 sigur á Ísrael.

12. september

Enska liðið virðist vera að rétta úr kútnum eftir 3-0 sigur á Rússum á Wembley þar sem Michael Owen skorar tvívegis og Rio Ferdinand bætir við því þriðja undir lokin.

13. október

Enn einn 3-0 sigurinn og nú á Eistum. Shaun Wright-Phillips og Wayne Rooney skora fyrir England og þriðja markið er sjálfsmark.

17. október

Englendingar keyra á vegg á gervigrasinu í Moskvu eftir góðan sprett í leikjunum á undan. Rooney kemur liðinu yfir en Roman Pvluchenko jafnar úr víti og nýtir sér svo mistök Paul Robinson til að tryggja Rússunum sigurinn.

16. nóvember

Englendingar þurfa á góðum sigri að halda til að rífa sig upp fyrir lokaleikinn gegn Króötum en vinna 1-0 baráttusigur á Austurríki í leiðinlegum leik. Enskir stuðningsmenn vilja að McClaren segi af sér.

17. nóvember

Ísraelar redda McClaren fyrir horn með því að leggja Rússa á heimavelli og á sama tíma tapa Króatar fyrir Makedóníumönnum. Vonir Englendinga um að komast á EM vakna á ný og enska landsliðinu nægir jafntefli á heimavelli í síðasta leik til að komast á stórmótið þrátt fyrir að útlitið hafi verið dökkt nokkrum dögum áður.

21. nóvember

Hamfaradagur í enskri knattspyrnu. Englendingar tapa 3-2 fyrir Króötum á heimavelli í leik þar sem linu nægði jafntefli til að forða sér frá milljarði punda í tekjutap með því að sitja heima á EM næsta sumar. Enska liðið er glórulaust í byrjun leiks og lendir undir 2-0, nær að jafna með góðri baráttu en fær á sig mark undir lokin og draumurinn er út eftir að Rússar vinna naumlega Andorra í lokaleiknum.

Enska liðið var ekki að leika vel frekar en fyrri daginn en ábyrgðin liggur hjá McClaren sem ákveður að gera stórar breytingar á hópnum - Eins og að setja óreyndan mann í markið sem fær á sig klaufamark á fyrstu mínútum leiksins. Þá er McClaren harðlega gagnrýndur fyrir að spila leikkerfið 4-5-1 sem aldrei hefur skilað landsliðinu neinum kampavínsbolta.

22. nóvember

Krísufundur haldinn hjá enska knattspyrnusambandinu þar sem Steve McClaren er rekinn. Leitin að eftirmanni hans er hafin. Enginn þjálfari enska landsliðsins hefur setið skemur í stólnum og McClaren.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×