Fótbolti

Gott að byrja á alvörulandsleik

Óskar Ófeigur Jónsson og blaðamaður á Fréttablaðinu skrifa
Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari
Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari Mynd/Martin Sylvest

Það ætti að vera gott fyrir Ólaf Jóhannesson að byrja að stjórna íslenska landsliðinu í keppnisleik. Þrír síðustu A-landsliðsþjálfarar sem hafa byrjað á leik í undankeppni HM eða EM hafa fagnað sigri í sínum fyrsta landsleik en aðeins einn af síðustu sjö þjálfurum sem hafa byrjað á vináttulandsleik eða leik í minni keppnum hefur náð að vinna sinn fyrsta leik.

 

Þessir hafa byrjað á leik í undankeppni HM eða EM (frá 1984)



Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson - sigur

2-1 gegn Færeyjum á Laugardalsvellinum 7.. júní 2003 (EM)

Ásgeir Elíasson - sigur

2-0 gegn Spáni á Laugardalsvellinum 25. september 1991 (EM)

Guðni Kjartansson - sigur

2-1 gegn Tyrklandi á Laugardalsvellinum 20. september 1989 (HM)

[Guðni stjórnaði aðeins þessum eina leik]



Þessir hafa byrjað á vináttulandsleik (frá 1984)

Eyjólfur Sverrisson - tap

0-2 gegn Trínidad og Tóbagó í London 28. febrúar 2006

Atli Eðvaldsson - jafntefli

0-0 gegn Noregi á La Manga 31. janúar 2000 (NM)

Guðjón Þórðarson - tap

0-1 gegn Noregi á Laugardalsvellinum 20. júlí 1997

Logi Ólafsson - tap

1-7 gegn Slóveníu á Möltu 7. febrúar 1996

Bo Johannsson - sigur

2-1 gegn Lúxemborg í Esch 28. mars 1990

Siegfred Held - tap

1-2 gegn Bahrein í Al Manamah 11. mars 1986

Tony Knapp - tap

0-1 gegn Noregi á Laugardalsvellinum 20. júní 1984




Fleiri fréttir

Sjá meira


×