Fótbolti

Tomasson verður með gegn Íslendingum

NordicPhotos/GettyImages

Markaskorarinn Jon Dahl Tomasson verður með danska landsliðinu á ný annað kvöld þegar það tekur á móti Íslendingum í lokaleik liðanna í undankeppni EM á Parken í Danmörku.

Tomasson var ekki með danska liðinu í tapinu gegn Norður-Írum um síðustu helgi en segist nú vera klár í leikinn við Íslendinga. Hann segir danska liðið vilja klára keppnina með stæl þrátt fyrir að eiga ekki möguleika á að komast á EM.

"Við viljum ljúka keppni á góðu nótunum og ná í öll þrjú stigin. Það verður kannski enginn kampavínsbolti hjá okkur en við förum í þennan leik til að vinna - því get ég lofað ykkur," sagði hinn íslenskættaði Tomasson á blaðamannafundi í dag.

Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari hefur tilkynnt að hann ætli að spila leikaðferðina 4-4-3 gegn Dönum, en þá dettur liðið niður í 4-5-1 í varnarleiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×