Fótbolti

Merk vill afnema aldurstakmark dómara

Markus Merk
Markus Merk NordicPhotos/GettyImages

Þýski dómarinn Markus Merk dæmir að öllu óbreyttu sinn síðasta landsleik á miðvikudagskvöldið þegar hann flautar leik Norðmanna og Tyrkja í undankeppni EM.

Þetta verður 50. landsleikur dómarans á ferlinum, en hann er orðinn 45 ára gamall og það þýðir að hann kemur ekki lengur til greina sem landsleikjadómari vegna aldurstakmarkana hjá FIFA.

Þetta finnst dómaranum blóðugt. "Það eiga ekki að vera aldurstakmörk hjá dómurum," sagði Merk í samtali við Kicker í Þýskalandi, en hann var kosinn dómari ársins hjá FIFA.

"Ég er í svo góðu formi að ég gæti staðist þolprófið þó ég tæki það tvisvar í röð. Mér finnst óréttlátt að dómarar þurfi að láta af störfum á þessum aldri, þar sem menn gefa sér það sjálfkrafa að þeir séu orðnir of gamlir," sagði Merk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×