Innlent

Tungan og Jónas heiðruð víða um land

Mikið verður um dýrðir á morgun þegar degi íslenskrar tungu verður fagnað og þess minnst að 200 ár eru frá fæðingu Jónasar Hallgrímssonar þjóðskálds.

Háskóli Íslands, Rithöfundasamband Íslands og afmælisnefnd Jónasar Hallgrímssonar efna til blysfarar frá aðalbyggingu Háskólans í Hljómskálagarð að styttunni af þjóðskáldinu. Hún var afhjúpuð 16. nóvember 1907, á aldarafmæli skáldsins. Þar verður flutt ávarp.

Þá verður hátíðarsamkoma í Þjóðleikhúsinu frá 19:30 til 20:30 undir heitinu Þar sem háir hólar. Þar verða verk Jónasar flutt í bundnu máli og lausu og tónlist tengd kvæðum hans og minning hans heiðruð með ýmsum hætti. Enn fremur verða verðlaun Jónasar Hallgrímssonar veitt á hátíðinni en hana hljóta þeir sem þykja hafa unnið að framgangi íslenskrar tungu. Hátíðarsamkoman er öllum opin og ókeypis aðgangur á meðan húsrúm leyfir.

Þá verður á morgun opnuð sýningin Ferðalok í Þjóðmenningarhúsinu en hún er helguð manninum, skáldinu og náttúrufræðingnum Jónasi Hallgrímssyni.

Háskóli Íslands stendur auk þess fyrir viðamikilli hátíðardagskrá í tilefni dagsins, frá klukkan 16 til 18.30. Hátíðin fer fram í stofu 201 í Árnagarði við Suðurgötu og þar mun menntamálaráðherra meðal annars flytja ávarp og kennarar við íslenskuskor kynna nýja lausn í íslenskukennslu fyrir útlendinga.

Enn fremur verður dagskrá í Kennaraháskóla Íslands, Háskólanum á Akureyri og í Skálholti í tilefni dagsins. Stóra upplestrarkeppnin hefst sömuleiðis formlega í grunnskólunum á morgun og verður dagurinn haldinn hátíðlegur í flestum skólum landsins.

Þess má til að mynda geta að nemendur 10. bekkjar Hvolsskóla á Hvolsvelli lesa Brennu-Njáls sögu í samstarfi við Sögusetrið á Hvolsvelli. Lesturinn hefst kl. 7.30 að morgni og lesa nemendur úr sögunni til skiptis fram á kvöld. Áætlað er að lestrinum ljúki um kl. 22.

 

 

 

 

 

Dagskrá á degi íslenskrar tungu má nálgast hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×