Innlent

Fundað um útrásarmál hjá stjórn OR

Stjórnarfundur hófst í Orkuveitunni núna klukkan 12. Vænta má að þar verði tekist á um útrásarmálin og samrunamálin sem mjög hafa verið í umræðunni.

Samkvæmt upplýsingum frá Orkuveitunni átti Dagur B. Eggertsson borgarstjóri fund með starfsfólki Orkuveitu Reykjavíkur í gær. Þar sagði hann meðal annars að stefnan væri sú að Orkuveitan yrði áfram í svokallaðri útrás. Alls ekki væri útilokað af hálfu aðaleiganda fyrirtækisins að af frekara samstarfi kunni að verða við Geysi Green Energy, líkt og nýleg ákvörðun um áframhaldandi verkefni á Filipseyjum sýndi. Þar vinna fyrirtækin saman.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×