Innlent

Dagur og Bryndís ávarpa starfsfólk OR

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Bryndís Hlöðversdóttir, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur ætla á eftir að ávarpa starfsmenn OR í höfuðstöðvum fyrirtækisins við Bæjarháls. Tilefnið eru þær hræringar sem átt hafa sér stað í tengslum við dótturfyrirtæki OR, Reykjavík Energy Invest.

Starfsmannafélag OR hefur skráð um 500 starfsmenn fyrir hlutum í REI en margir þeirra íhuga nú að draga sig úr þeim viðskiptum eftir umskipti síðustu daga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×