Fótbolti

Hækkar um sæti þrátt fyrir afleitan árangur

NordicPhotos/GettyImages

Íslenska landsliðið í knattspyrnu hefur hækkað um eitt sæti á FIFA listanum góða þrátt fyrir afleitan árangur í síðustu leikjum. Liðið situr nú í 79.-80. sæti listans á meðan síðustu andstæðingar okkar Liechtensteinar hafa hoppað upp um 23 sæti á listanum og eru í sæti 199.

Það eru Argentínumenn sem verma toppsætið á listanum, Brasilíumenn eru í öðru sæti og Ítalir eru í því þriðja. Þá koma Frakkar í fjórða sæti, Þjóðverjar í fimmta og Spánverjar í sjötta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×