Eiður Smári: Þýðir ekkert að fara heim og grenja 17. október 2007 20:20 "
Það er erfitt að segja," sagði Eiður Smári Guðjohnsen landsliðsfyrirliði þegar hann var spurður að því hvað hefði farið úrskeiðis hjá íslenska landsliðinu í 3-0 tapinu fyrir Liechtenstein í kvöld. "Ég held að því miður höfum við bara ekki verið nógu vel skipulagðir og nýttum færin okkar ekki nógu vel. Ég sjálfur hefði átt að skora eitt eða tvö mörk og við vorum kannski dálítið slegnir út af laginu þegar þeir skoruðu. Þriðja markið hjá þeim undirstrikaði samt endanlega að þetta var ekki okkar dagur þegar maðurinn tekur boltann með vinstri og þrumar honum upp í vinkilinn," sagði Eiður í samtali við Guðmund Benediktsson á Sýn. Guðmundur spurði Eið hvort sigur heimamanna hefði ekki geta talist sanngjarn. "Jú, það má sennilega segja það. Leikurinn hefði kannski spilast eitthvað öðruvísi ef við hefðum náð að setjá á þá mark í fyrri hálfleik, en þegar á heildina er litið má sennilega segja að þetta hafi verið verðskuldaður sigur hjá þeim - þó sé erfitt að viðurkenna það," sagði Eiður. Hann segir þó engan uppgjafartón í íslenska liðinu fyrir lokaleikinn við Dani á útivelli. "Við verðum bara að fara til Danmerkur með það í huga að spila fyrir land og þjóð. Ég held að við þurfum bara að þjappa okkur saman, það þýðir ekkert að fara heim og grenja og við verðum að sýna hvað í okkur býr í Danmörku. Það er erfitt að finna eitthvað eitt sem var að í kvöld, því það voru margir hlutir sem voru ekki að ganga hjá okkur," sagði fyrirliðinn.
Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Úkraínsk tennisstjarna gagnrýnir ákvörðun IOC: „Þetta er hræðilegt“ Sport Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Enski boltinn Conor McGregor segist vera sá besti í sögunni og ætlar að sanna það Sport Lýsandinn, Tevez og Agüero sturluðust þegar Messi jafnaði Fótbolti Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Fótbolti FIFA hafnaði áfrýjun Frakka Fótbolti Konurnar fá helminginn af verðlaunafé bandaríska karlalandsliðsins Fótbolti Fleiri fréttir Haaland orðinn stærri en Manchester City Konurnar fá helminginn af verðlaunafé bandaríska karlalandsliðsins Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Skoraði í styrktarleik fyrir móður sína Justin Bieber kemur fram í hálfleik á úrslitaleik HM Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Norska landsliðið flúði hótelið sitt Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Segir að læknir norska landsliðsins sé mjög upptekinn Lýsandinn, Tevez og Agüero sturluðust þegar Messi jafnaði FIFA hafnaði áfrýjun Frakka Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Rannsaka kynþáttahatur argentínskra stuðningsmanna Egyptar vilja að dómararnir verði sendir heim Ungu strákar Blika að leggja lóð sín á vogarskálarnar Styrktarleikur á Selfossi þegar vinaliðin mætast í fyrsta sinn Sjáðu sigurmark Víkinga og meiðslin sem skyggðu á gleðina Blikar fá Hlyn heim frá Svíþjóð Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Hildur til Newcastle Maður dagsins á HM: Gat valið um fjórar íþróttir sem táningur Segir að það sé verið að dæma í hag Argentínu á HM FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Veikindi herja á norska liðið Forsætisráðherra Kanada óskaði eftir því að deila Haaland á næsta HM Tuchel bannar Englendingum að stökkva yfir auglýsingaskilti eftir ófarir Henderson Sjá meira