Rússar lögðu Englendinga 17. október 2007 16:49 Rússarnir fögnuðu gríðarlega þegar Roman Pavluchenko skoraði síðara mark sitt og tryggði þeim sigur á Englendingum AFP
Staða Englendinga í undankeppni EM versnaði til muna í dag þegar liðið tapaði 2-1 fyrir Rússum í dramatískum leik á gervigrasinu í Moskvu. Wayne Rooney kom enska liðinu yfir eftir hálftíma leik, en tvö mörk frá heimamönnum í síðari hálfleik þýða að nú þarf allt að ganga enska liðinu í hag ef það á að komast á EM. Útlitið var bjart hjá Englendingum framan af leik og Wayne Rooney kom liðinu yfir á 29. mínútu með þrumuskoti. Steven Gerrard klúðraði svo dauðafæri áður en varamaðurinn Roman Pavluchenko jafnaði fyrir Rússa á 69. mínútu með marki úr víti sem dæmt var á Wayne Rooney. Brotið átti sér augljóslega stað fyrir utan teig, en spænski dómarinn dæmdi vítaspyrnu. Rússarnir pressuðu stíft eftir jöfnunarmarkið og fjórum mínútum síðar var Pavluchenko aftur á ferðinni. Rússarnir eiga leik til góða á Englendinga í riðlinum og og nú munar aðeins tveimur stigum á liðunum. Króatar eru á toppnum og ættu að eiga sigurinn vísan í riðlinum. Englendingar eiga eftir að mæta Króötum á heimavelli sínum, en Rússar eiga eftir leiki gegn Andorra og Ísrael. Króatar hafa 26 stig á toppi E-riðilsins eftir 10 leiki, Englendingar hafa 23 stig eftir 11 leiki og Rússar hafa 21 stig eftir 10 leiki.
Mest lesið Ánægðir með stælana í Hauki: „Sagði bara fokkaðu þér“ Handbolti Sænska goðsögnin: Þeir hafa ekki viljann sem Íslendingar hafa Handbolti Skýrsla Vals: Vel nýttur veikindadagur Handbolti „Við mættum ótrúlega góðu íslensku liði í dag“ Handbolti Dagur vann líka og nú eru fjögur lið með fjögur stig í íslenska riðlinum Handbolti Uppgjörið: Svíþjóð - Ísland 27-35 | Íslensku strákarnir sökktu Svíum Handbolti „Gífurlega tilfinningaþrungið“ fyrir sænsku stjörnuna Handbolti Einkunnir Strákanna okkar á móti Svíþjóð: Ótal hetjur í fræknum sigri Handbolti „Takk fyrir okkur en við þurfum fleiri stig“ Handbolti EM í dag: Flensuleikur Vals og stemningslausir Svíar Handbolti Fleiri fréttir Hákon í leikbanni og Lille steinlá á heimavelli Orri sneri aftur eftir meiðsli Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Sjáðu Yamal skora „besta mark tímabilsins“ Tókst bara að jafna gegn tíu mönnum í toppslagnum Logi skoraði sjálfsmark í sigri Mikael Egill fagnaði endurkomusigri Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Heiðdís leggur skóna á hilluna Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Ásdís Karen lagði upp í öruggum sigri gegn botnliðinu Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Mbappé skaut Real Madrid upp í toppsætið Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Hákon framlengdi við Lille til 2030 Alberti og félögum mistókst að komast upp úr fallsæti Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Bayern tapaði deildarleik í fyrsta sinn á tímabilinu Alfons fer aftur til Hollands Elísa fer frá Val til Breiðabliks Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sandra fiskaði víti og fagnaði sigri í Íslendingaslag Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Vill umræðu um sniðgöngu HM vegna Trump „Börnin mín fengu mig til að hætta með reiðiköstin“ Sjá meira