Fótbolti

Riquelme sá um Chile

Elvar Geir Magnússon skrifar
Riquelme var í stuði í gær.
Riquelme var í stuði í gær.

Í Suður-Ameríku er undankeppni heimsmeistaramótsins farin af stað. Argentína lék sinn fyrsta leik í gær er leikið var gegn Chile. Juan Roman Riquelme skoraði bæði mörk leiksins en Argentína vann 2-0 sigur.

Bæði mörk Riquelme komu úr aukaspyrnum. Fleiri leikir fóru fram í gær. Venezúela vann Ekvador 1-0, Perú og Paragvæ gerðu markalaust jafntefli og Úrúgvæ vann stórsigur gegn Bólivíu 5-0.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×