Fótbolti

Ég hef ekki spilað vel í tvö ár

NordicPhotos/GettyImages

Framherjinn Wayne Rooney viðurkennir að hann hafi ekki spilað vel með enska landsliðinu í tvö ár og efast um að hann hefði fengið tækifæri í byrjunarliðinu gegn Eistum ef ekki hefði verið fyrir meiðsli Emile Heskey.

Rooney hefur þótt nokkuð öruggur valkostur í enska landsliðið ef hann hefur verið heill allar götur síðan hann spilaði sinn fyrsta landsleik gegn Ástralíu árið 2003 - þá aðeins 17 ára gamall.

"Ég byrjaði vel með enska landsliðinu en ég hef ekki náð mér almennilega á strik síðustu 1-2 ár. Emile var frábær í síðustu landsleikjum og ég er viss um að landsliðsþjálfarinn hefði staðið frammi fyrir erfiðri ákvörðun ef hann hefði ekki verið meiddur. Það er búið að vera svekkjandi að ná sér ekki á strik, en það er ekki af því að ég sé ekki að reyna mitt besta. Þessi tími gerir mig bara meira staðráðinn í að ná mér aftur á strik," sagði Rooney.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×