Fótbolti

Bann Alonso stytt í tvo leiki

Nordic photos/afp

Spænski landsliðsmaðurinn Xabi Alonso hjá Liverpool mun verða klár í slaginn fyrir leik Spánverja og Svía í undankeppni EM eftir að leikbann hans eftir rauða spjaldið gegn íslenska landsliðinu var stytt úr þremur leikjum í tvo eftir áfrýjun Spánverja.

Alonso hefur verið meiddur undanfarið en gert er ráð fyrir því að hann verði búinn að ná sér fyrir mikilvægan leik Spánverja gegn Svíum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×