Innlent

Vilja að ríkið greiði hærri húsaleigubætur

Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga vill taka upp viðræður við ríkisvaldið um hækkun húsleigubóta. Forsenda þess að þær verði hækkaðar sé hinsvegar sú að ríkið beri þann aukakostnað, sem af því hlytist. Vísað er til þess að þegar húsaleigubætur voru fyrst teknar upp var kostnaðarskipting ríkis og sveitarfélaga þannig að ríkið greiddi 60 prósent en sveitarfélögin 40. Nú sé skiptingin hinsvegar orðin nánast til helminga, þannig að það sé ríkissjóðs að taka á sig hækkun bóta, ef til kæmi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×