Engin merki um gliðnun við Hálslón 15. ágúst 2007 18:54
Öll umræða um hættu á að sprungur undir Hálslóni myndu gliðna við fyllingu Hálslóns voru óþarfar segir jarðeðlisfræðingur sem fylgst hefur náið með skjálftavirkni á svæðinu. Hann segir það hafa komið á óvart hve lítil áhrif lónsfyllingin hefur haft á sprungusvæðið. Í það minnsta tvær skýrlsur voru gerðar um málið þar sem lagt var mat á það hvort hætta væri á að sprungur sem liggja undir Hálslóni myndu gliðna og land síga þegar fyllt yrði í lónið. Umræða um efnið var mikil og bar hún hæst þegar í ljós kom að skýrsla sem Grímur Bjönsson, jarðfræðingur skrifaði, hafði verið stungið undir stól. Í þjóðfélaginu spratt upp umræða um hugsanlegar hamfarir á svæðinu og Landsvirkjunarmenn sakaðir um að taka of mikla áhættu. Landsvirkjun lét endurmeta svæðið og fékk jarðeðlisfræðinga til að fara nákvæmar í saumana á áhættunni samfara fyllingu lónsins. Út kom skýrsla sem bar nafnið Mat á vá við Kárahnjúka þar sem lagt var til að vel yrði fylgst með svæðinu. Mælar voru settir upp og jarðvegurinn undir lóninu styrktur með því að fylla í sprungur. Hvort það hafi borið árangur er ekki gott að segja en mælingar Kárahnjúkasvæðinu sína að fylling lónsins hefur ekki haft nein áhrif á sprungusvæðið. Steinunn Sigríður Jakobsdóttir jarðeðlisfræðingur hjá Veðurstofunni segir enga skjálfta hafa mælst á svæðinu sem komi á óvart. Áhyggjur sem fólk hafði fyrir fyllingu Hálslóns af því að sprungur myndu gliðna séu óþarfar í það minnsta enn sem komið er. Áfram verður fylgst með svæðinu og ekki er útilokað að þar muni mælast skjálftar í framtíðinni en þeir muni vonandi ekki hafa áhrif á lónið sjálft.
Mest lesið Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Innlent Þessi fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi Innlent Tugir látnir eftir sprengingu í svissneskum skíðabæ Erlent Óttast að um fjörutíu hafi látist á skemmtistaðnum Erlent Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Innlent Kirkja í Amsterdam alelda Erlent Íslendingar tjá sig um skaupið: „Versta skaup ever“ eða það besta í manna minnum? Lífið Hitnar undir feldi Péturs Innlent Fyrsta barn ársins kom í heiminn klukkan 00:24 Innlent Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Innlent Fleiri fréttir Fluttur á sjúkrahús eftir slys í Hrútafirði Pétur fer á móti borgarstjóra og vill fyrsta sætið í Reykjavík Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Hitnar undir feldi Péturs Þessi fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi „Líðan barna nú mun móta sögu og styrk Íslands á næstu árum“ Fleirum þykir Flokki fólksins ganga illa að hrinda málum í framkvæmd Fimmtán leituðu á bráðamóttöku vegna flugeldaslysa Fjögurra stiga skjálfti í Bárðarbungu: „Stærsti skjálftinn á árinu“ Hvetur Íslendinga til að hafna „svartagallsrausi“ Ríflega tuttugu útköll vegna eldsvoða Vill annað sætið hjá Samfylkingunni í borginni Kveðst hlakka til að mæta aftur til starfa Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Fyrsta barn ársins kom í heiminn klukkan 00:24 Miðahafi á Íslandi vann 642 milljónir í Víkingalottói Stunguárás og margar tilkynningar um flugeldaslys Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur Vísis Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Simmi vinsælasti leynigesturinn „Þetta er Íslandsmet, Íslandsmet í svikum“ Tal um Ingu eftir kosningar ekki til sóma Gummi lögga er maður ársins 2025 Árangur breyti ekki alltaf upplifun fólks „Viðreisn jafnvel erfiðari viðfangs en Flokkur fólksins“ Vara við hættu á sinubruna Haldlögðu metmagn af fíkniefnum á árinu Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Árið gert upp í Kryddsíld 2025 Hafþór Freyr maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Bylgjunnar Sjá meira